Smith Rowe og Nelson á förum - Chelsea náði samkomulagi við Aston Villa - Úrvalsdeildarfélög keppast um Abraham - Arsenal vill Nico Williams -...
Lengjudeild karla
Fjölnir
46' 0
0
Þór
Lengjudeild karla
Dalvík/Reynir
LL 0
0
Keflavík
Lengjudeild karla
Leiknir R.
LL 2
3
Grindavík
Besta-deild kvenna
Stjarnan
45' 1
1
Þór/KA
Lengjudeild kvenna
Selfoss
LL 1
0
Afturelding
Besta-deild kvenna
FH
LL 1
0
Keflavík
Stjarnan
4
3
FH
Esther Rós Arnarsdóttir '6 1-0
Gyða Kristín Gunnarsdóttir '10 2-0
2-1 Snædís María Jörundsdóttir '12
Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir '13 3-1
Caitlin Meghani Cosme '16 4-1
4-2 Elísa Lana Sigurjónsdóttir '74
4-3 Breukelen Lachelle Woodard '90
14.05.2024  -  18:00
Samsungvöllurinn
Besta-deild kvenna
Dómari: Breki Sigurðsson
Áhorfendur: 207
Maður leiksins: Gyða Kristín Gunnarsdóttir (Stjarnan)
Byrjunarlið:
1. Auður Sveinbjörnsdóttir Scheving (m)
2. Sóley Edda Ingadóttir
3. Arna Dís Arnþórsdóttir
5. Eyrún Embla Hjartardóttir
6. Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir ('74)
15. Hulda Hrund Arnarsdóttir ('55)
16. Caitlin Meghani Cosme
21. Hannah Sharts
22. Esther Rós Arnarsdóttir
23. Gyða Kristín Gunnarsdóttir
26. Andrea Mist Pálsdóttir ('90)

Varamenn:
83. Erin Katrina Mcleod (m)
7. Henríetta Ágústsdóttir ('74)
10. Anna María Baldursdóttir
17. Fanney Lísa Jóhannesdóttir ('55)
24. Ingibjörg Erla Sigurðardóttir
30. Hrafnhildur Salka Pálmadóttir ('90)
39. Katrín Erla Clausen

Liðsstjórn:
Kristján Guðmundsson (Þ)
Rajko Stanisic
Hilmar Þór Hilmarsson
Benjamín Orri Hulduson
Hulda Björk Brynjarsdóttir
Vignir Snær Stefánsson

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Leik lokið!
FH ingar sækja, en sóknin rennur út í sandinn og Breki flautar leikinn af. Skýrsla og viðtöl væntanleg.
90. mín MARK!
Breukelen Lachelle Woodard (FH)
+3 Thelma með góða fyrirgjöf og Breukelen stekkur upp í miðvarðarsamloku en hefur betur og setur hann beint undir slánna.
90. mín
+2 Hannah og Breukelen að eigast við. Hannah fer niður og fær aukaspyrnu en virðist aðeins sparka til Breukelen. Breki biður þær vinsamlegast um að hætta þessu og halda áfram.
90. mín
Fáum fjórar mínútur í uppbótartíma
90. mín
Inn:Hrafnhildur Salka Pálmadóttir (Stjarnan) Út:Andrea Mist Pálsdóttir (Stjarnan)
89. mín
Stjarnan fær aukaspyrnu og Andrea lætur bara vaða af nokkuð löngu færi en boltinn yfir markið.
88. mín
Spyrnan frá Andreu er fín en Stjörnukonur ná ekki að skapa sér almennilegt færi
87. mín
Arna Dís vinnur horn fyrir Stjörnuna.
85. mín
Breukelen á skot sem fer hátt yfir.
83. mín
Inn:Berglind Freyja Hlynsdóttir (FH) Út:Hildigunnur Ýr Benediktsdóttir (FH)
78. mín
Elísa Lana reynir aftur skot á eiginlega nákvæmlega sama stað og áðan en nú fer það langt yfir markið.
74. mín MARK!
Elísa Lana Sigurjónsdóttir (FH)
Stoðsending: Selma Sól Sigurjónsdóttir
ALVÖRU MARK Nú eru það FH sem vinna boltann hátt í pressunni. Boltinn berst til Thelmu sem rennir honum á Elísu Lönu sem smyr hann í skeytinn af löngu færi. Varla hægt að kalla þetta stoðsendingu hjá Thelmu en gef henni hana samt.
74. mín
Inn:Henríetta Ágústsdóttir (Stjarnan) Út:Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir (Stjarnan)
73. mín
Inn:Thelma Karen Pálmadóttir (FH) Út:Snædís María Jörundsdóttir (FH)
73. mín
Inn:Birna Kristín Björnsdóttir (FH) Út:Valgerður Ósk Valsdóttir (FH)
72. mín
Elísa Lana með hornspyrnu beint í hliðarnetið. Hornspyrnurnar í þessum leik hafa ekki verið neitt frábærar.
67. mín
Fanney búin að vera gríðarlega kraftmikil síðan hún kom inn á. Hleypur og hleypur hreinlega eins og einhver sé að elta hana bæði fram á við og til baka í varnarvinnunni. Fædd árið 2009 takk fyrir
66. mín
Aftur er Fanney Lísa að gera vel en þær ná af henni boltanum síðustu stundu og koma honum frá.
66. mín
Fanney Lísa fær boltann í hlaupið upp kantinn og lætur vaða þegar hún er komin í skotfæri. Aldís ver en er ekki langt frá því að setja boltann beint á Esther sem kemur á fullu inn í teiginn en Aldís bjargar sér.
63. mín
Andrea hittir hann illa og spyrnan er beint afturfyrir.
62. mín
Stjarnan fær horn
59. mín
Inn:Helena Ósk Hálfdánardóttir (FH) Út:Margrét Brynja Kristinsdóttir (FH)
59. mín
Inn:Halla Helgadóttir (FH) Út:Jónína Linnet (FH)
59. mín
Auður er staðin upp og virðist geta haldið leik áfram.
58. mín
Auður sest niður og heldur um hausinn. Sýnist hún gefa til kynna að hún hafi fengið olnboga í hausinn.
57. mín
Kemur ekkert upp úr horninu en þær fá annað stuttu seinna sem endar af einhverjum í hrúgunni í slánni. Þær koma boltanum svo frá.
56. mín
FH vinna horn hinum megin
56. mín
Esther komin í fína stöðu inn á teig en nær ekki stjórn á boltanum sem endar í fanginu á Aldísi.
55. mín
Inn:Fanney Lísa Jóhannesdóttir (Stjarnan) Út:Hulda Hrund Arnarsdóttir (Stjarnan)
Fanney kemur inn ekki Henríetta. Hulda búin að skila góðu dagsverki.
54. mín
Hreyfing á bekknum hjá Stjörnunni, sýnist það vera Henríetta.
51. mín
SLÁIN Úlfa Dís gerir virkilega vel og kemur sér í skotfæri sem virðist vera á leiðinni undir slána en ég sé ekki betur en að Aldís verji hann á slána. Breki dómari er ósammála og dæmir markspyrnu.
46. mín
Esther strax komin í færi en setur hann fram hjá. Spurning hvort hún hefði getið rennt honum yfir á fjær þar sem Gyða Kristín kom á siglingunni.
46. mín
Seinni kominn í gang
45. mín
Hálfleikur
leikurinn hefur aðeins róast seinni hluta hálfleiksins en bæði lið þó fengið ágætis stöður. Stjörnukonur líklegri til að bæta við frekar en hitt en við skulum sjá hvað gerist í seinni.
45. mín
Hálfleikur
FHingar eiga síðasta færi hálfleiksins eftir horn. Boltinn fer yfir Auði og berst á fjær en þar er enginn og Breki flautar til hálfleiks.
45. mín
Arna Dís með frábæra takta úti á hægri kantinum áður en hún rennir honum á Andreu Mist sem á skot yfir markið.
43. mín
Hulda fer illa með Jónínu úti vinstra megin en FH vörnin kemst fyrir skotið hennar.
40. mín
Hulda Hrund með skot fyrir utan teig sem Aldís ver örugglega. Þetta kom enn og aftur upp úr grimmri pressu Stjörnunnar.
37. mín
Spyrnan er ekki góð og FH hreinsa
36. mín
Innköstin hjá Hannah Sharts eru ekkert smá vopn til að hafa, sú getur kastað. Stjarnan vinnur horn upp úr einu slíku.
35. mín
Stjörnukonur eru að éta FHinga í pressunni trekk í trekk um allan völl. Nú er það Arna Dís sem er nálægt því að koma sér í góða stöðu en Valgerður gerir vel og kemur boltanum í innkast
34. mín
Breukelen kemur boltanum í netið en flaggið farið á loft.
34. mín
Eiginlega alveg eins horn og Hildigunnur tók áðan og Stjörnukonur hreinsa
33. mín
Ída með skot fyrir utan teig sem fer af varnarmanni og afturfyrir, horn fyrir FH
30. mín
Búin að horfa á endursýningu af þessu og Hulda Hrund er inn í teig þegar Hildigunnur hleypur aftan í hana, hefði klárlega átt að vera víti.
29. mín Gult spjald: Hildigunnur Ýr Benediktsdóttir (FH)
Fékk spjald fyrir brotið
29. mín
Andrea tók spyrnuna en beint í hendurnar á Aldísi.
29. mín
Víti? Aukaspyrna á vítateigslínunni! Held að þetta sé vitlaust, klárlega víti frá mér séð!!
26. mín
Stöngin Breukelen leikur listir sínar inn í teig Stjörnunnar áður en hún hleður í skot sem endar í stönginni.
23. mín
Ída Marín lætur vaða en skotið er langt yfir.
22. mín
Breukelen ber boltann upp völlinn og er komin langt þangað til það er brotið á henni og FH fá aukaspyrnu á fínum stað.
16. mín MARK!
Caitlin Meghani Cosme (Stjarnan)
ÉG Á EKKI TIL EITT AUKATEKIÐ ORÐ Stjörnukonur fá horn sem kemur á fjær þar sem Hannah nær skalla á Andreu sem á skalla á markið en Aldís ver boltann út í teiginn. Þar er Caitlin tilbúin að ráðast á hann og kemur honum í netið.
13. mín MARK!
Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir (Stjarnan)
Stoðsending: Esther Rós Arnarsdóttir
HVAÐ ER AÐ GERAST HÉRNA?????? Stjörnukonur vinna boltann vinstra megin á vellinum og öll miðja FHinga dregst að boltanum eins og kettir og Lazer. Ein einföld sending yfir til hægri á Úlfu sem hefur flugbraut, finnur Esther úti hægra megin við sig og tekur sjálf á rás inn á fjær. Esther finnur hana aftur þar og hún klárar í opið markið. Xg í þessu færi örugglega í kring um 0,99
12. mín MARK!
Snædís María Jörundsdóttir (FH)
Stoðsending: Ída Marín Hermannsdóttir
Stjörnukonan sjálf Ída fær boltann úti á hægri kantinum og á frábæran bolta á milli varnar og markmanns og Snædís gerir allt rétt og setur hann framhjá Auði í markinu.
10. mín MARK!
Gyða Kristín Gunnarsdóttir (Stjarnan)
2-0 Esther finnur Úlfu Dís í hlaupið. Hún á fyrirgjöf í varnarmann og svo dettur boltinn beint fyrir lappir Gyðu sem klárar sláin inn.
6. mín MARK!
Esther Rós Arnarsdóttir (Stjarnan)
Stoðsending: Gyða Kristín Gunnarsdóttir
1-0 Bras í uppspili FH og Stjarnan étur þær í pressunni. Hulda vinnur boltann, kemur honum á Gyðu sem finnur Esther í hlaupi á milli miðvarða FH. Hún fær góðan tíma til að klára færið og gerir það vel niðri vinstra megin.
6. mín
Spyrnan hjá Hildigunni ekki nægilega góð og Andrea Mist hreinsar auðveldlega.
5. mín
Fyrsta horpspyrna leiksins er FHinga
3. mín
Andrea tekur aukaspyrnuna á miðjum vallarhelmingi FH inn á teiginn þar sem einhver í þvögunni nær máttlausum skalla beint í fang Aldísar.
2. mín Gult spjald: Valgerður Ósk Valsdóttir (FH)
Það var ekki lengi gert. Togar Úlfu Dís niður sem er að taka á rás upp völlinn.
1. mín
Leikur hafinn
Snædís sparkar þessu í gang gegn uppeldisfélaginu.
Fyrir leik
Allt að gerast Liðin ganga inn á völlinn, Stjarnan í sínum bláu búningum og FH í hvítu. Allt eins og það á að vera.
Fyrir leik
Spáð í spilin Hafrún Rakel spáði fyrir þessari umferð í Bestu deildinni

Stjarnan 1 - 2 FH
Bæði lið að ströggla aðeins í byrjun tímabils en FH eru með tvær hitasjúkar, Valgerði og Helenu Ósk sem munu gera gæfumuninn í þessum leik. 2-1 fyrir FH með mörkum frá þeim báðum.
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Fyrir leik
Byrjunarliðin Kristján gerir tvær breytingar á sínu liði frá tapinu gegn Blikum. Inn koma Úlfa Dís og Hulda Hrund og Henríetta og Hrafnhildur Salka fá sér sæti á bekknum.

Bræðurnir gera sömuleiðis tvær breytingar á sínu liði frá síðasta leik en Andrea Rán tekur út leikbann í dag og þá fær Selma Sól sér sæti á bekknum. Inn fyrir þær koma Margrét Brynja og Ída Marín en þetta er fyrsti leikur ídu fyrir FH en hún var fengin frá Völsurum fyrir tímabilið. Hún stundar nám í Bandaríkjunum og er líklega nýkomin þaðan og fer beint í liðið.
Fyrir leik
Dómarateymið Með flautuna í dag er Breki Sigurðsson og honum til halds og trausts eru AD1, Sigurður Þór Sveinsson, og AD2, Milan Djurovic. Eftirlitsmaður er Sigursteinn Árni Brynjólfsson og varadómari er Ágúst Hjalti Tómasson.
Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Breki Sigurðsson, hér lengst til vinstri.
Fyrir leik
Upp og ofan hjá fimleikafélaginu FH byrjaði mótið á Króknum þar sem þær sóttu góð 3 stig. Í næsta leik fengu þær Þór/KA í heimsókn og endaði sá leikur 0-4 þar sem Sandra María lék á als oddi og setti öll fjögur. Þar á eftir töpuðu þær sannfærandi 3-0 gegn Blikum í Kópavoginum en náðu síðan sigri á heimavelli gegn Þrótturum í síðasta leik þar sem sigurmarkið kom á 7. mínútu í uppbótartíma en Breukelen Woodard skoraði það. Fjórar ólíkar frammistöður hja þeim í fyrstu fjórum leikjunum og leitast þær væntanlega eftir því í dag að tengja saman sigra og ná ákveðnum stöðugleika i sinn leik.
Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Breukelen skoraði sigurmark FH í síðasta leik.
Fyrir leik
Erfið byrjun heimakvenna Stjörnukonur eru aðeins komnar með 3 stig á töfluna eftir fyrstu fjórar umferðirnar en þau sóttu þær til Keflavíkur í endurkomusigri eftir að hafa lent 2-0 undir. Það gefur augaleið að 3 stig eftir fjórar umferðir er rýr uppskera og þurfa Stjörnukonur að fara að gefa í. Ég vænti þess að þær vilji bæta upp fyrir arfaslaka frammistöðu í síðasta leik þegar Blikar fóru illa með þær í 5-1 sigri þeirra grænklæddu en þær voru komnar í 5-1 strax eftir 39 mínútur, það verður gaman að sjá hvernig þær svara fyrir það.
Mynd: Tryggvi Már Gunnarsson

Fyrir leik
Velkomin á Samsung Kæru lesendur, verið hjartanlega velkomin í beina textalýsingu frá leik Stjörnunnar og FH í 5. umferð Bestu deildarinnar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Byrjunarlið:
1. Aldís Guðlaugsdóttir (m)
3. Erla Sól Vigfúsdóttir
5. Arna Eiríksdóttir (f)
8. Valgerður Ósk Valsdóttir ('73)
9. Breukelen Lachelle Woodard
10. Ída Marín Hermannsdóttir
14. Snædís María Jörundsdóttir ('73)
16. Margrét Brynja Kristinsdóttir ('59)
17. Elísa Lana Sigurjónsdóttir
20. Jónína Linnet ('59)
31. Hildigunnur Ýr Benediktsdóttir ('83)

Varamenn:
12. Herdís Halla Guðbjartsdóttir (m)
2. Birna Kristín Björnsdóttir ('73)
4. Halla Helgadóttir ('59)
11. Helena Ósk Hálfdánardóttir ('59)
32. Berglind Freyja Hlynsdóttir ('83)
33. Thelma Karen Pálmadóttir ('73)
36. Selma Sól Sigurjónsdóttir

Liðsstjórn:
Guðni Eiríksson (Þ)
Hlynur Svan Eiríksson (Þ)
Hjörtur Hinriksson
Dagur Óli Davíðsson
Karen Tinna Demian
Telma Ýr Guðmundsdóttir
Brynjar Sigþórsson

Gul spjöld:
Valgerður Ósk Valsdóttir ('2)
Hildigunnur Ýr Benediktsdóttir ('29)

Rauð spjöld: