Real Madrid sýnir Mac Allister áhuga - Greenwood eftirsóttur - Mourinho til Tyrklands? - Slot vill fá Silva
banner
   mið 01. maí 2024 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Ólína áfram í Stjörnunni
Mynd: Stjarnan
Ólína Ágústa Valdimarsdóttir hefur skrifað undir nýjan samning hjá Stjörnunni sem gildir til næstu tveggja ára.

Ólína er fædd árið 2005 og uppalin hjá Stjörnunni en hún lék sinn fyrsta deildarleik með liðinu árið 2022.

Sama sumar var hún lánuð til KR þar sem hún skoraði sitt fyrsta og eina mark í efstu deild.

Ólína hefur komið við sögu í einum leik með Stjörnunni í deildinni á þessari leiktíð en hún kom inn af bekknum í 2-1 tapi liðsins gegn Víkingi fyrir rúmri viku.

Þessi unga og efnilega fótboltakona hefur nú skrifað undir nýjan tveggja ára samning við félagið.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner