Sancho, Sesko, Mac Allister, Ten Hag, Raya og fleiri góðir koma við sögu
Gregg Ryder: Verið erfiðir tímar fyrir félagið og stuðningsmennina
Ragnar Bragi eftir sinn fyrsta leik í sumar: Erfitt að horfa úr stúkunni
Heimir Guðjóns: Aldrei víti og tekið af okkur löglegt mark
Aron Sig: Menn héldu að þeir væru miklu betri en þeir eru
Góð innkoma hjá Viðari - „Sér hlutina á háu leveli"
Sindri Kristinn: Helgi Mikael gefur þessa vítaspyrnu
„Leikmaðurinn var ekki að fúnkera og þess vegna gerum við skiptingu"
Daníel Hafsteins: Væri fínt ef ég væri alltaf haltur
Brynjar Björn: Hef enga útskýringu á því hvort það sé bakvarðarstaðan sem slík
Siggi Höskulds: Komum með aðeins breytt leikplan
Aron Bjarki: Erum sáttir þar sem við erum
Arnar: Einn sá besti en De Bruyne og Foden spila ekki alla leiki
Beint út með boltapoka eftir núll mínútur - „Ákveðið styrkleikamerki í hausnum á mér"
Hemmi Hreiðars: Oliver hefði frekar átt að fá víti en seinna gula
Davíð Smári: Að hafa hugrekkið til að spila gegn besta liði landsins
Bjarki Björn skoraði glæsimark: Þeir hljóta að hafa verið að horfa
Ásta Eir: Mér er alveg sama hvernig við vinnum leikinn
Nik hreinskilinn: Þetta er ekki nægilega gott fyrir þetta stig
Kristján miður sín: Veit ekki hvort ég sé búinn að segja of mikið
Anna María: Fáránlegur dómur sem skemmir leikinn gjörsamlega
banner
   fim 02. maí 2024 20:57
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Óli Kristjáns: Þegar þú skapar þér ekki færi er erfitt að skora
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Maður er alltaf ósáttur við að tapa, það þarf að kyngja því," sagði Ólafur Kristjánsson þjálfari Þróttar eftir tap liðsins gegn Þór/KA á Akureyri í kvöld.


Lestu um leikinn: Þór/KA 2 -  1 Þróttur R.

„Vorum að spila við hörku gott lið með öfluga sóknarmenn. Annað markið drap þetta svolítið, mér fannst við byrja leikinn vel. Svo er Þór/KA sterkari en við endum leikinn betur en maður fær ekkert fyrir það."

Þróttarar byrjuðu leikinn mjög vel en tókst þó ekkert að ógna marki Þór/KA.

„Við ráðumst ekki nógu mikið á teiginn þegar Caroline er að brjótast í gegn. Þegar þú skapar þér ekki færi er erfitt að skora. Við erum beittari í seinni hálfleik en markið kemur kannski aðeins of seint. Við vissum að þær lúrðu alltaf á skyndisóknunum þannig þú ert bæði að reyna sækja leikinn og vita af hættunni sem lúrir," sagði Óli.


Athugasemdir
banner
banner
banner