Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
Þór/KA
2
2
KR
0-1 Ásdís Karen Halldórsdóttir '3
Sandra Mayor '9 , víti 1-1
1-2 Katrín Ómarsdóttir '49
Karen María Sigurgeirsdóttir '88 2-2
23.06.2019  -  14:00
Þórsvöllur
Pepsi-Max deild kvenna
Aðstæður: Frábært veður! 17° og smá hafgola.
Dómari: Sigurður Hjörtur Þrastarson
Áhorfendur: 204
Maður leiksins: Katrín Ómarsdóttir - KR
Byrjunarlið:
Bryndís Lára Hrafnkelsdóttir ('46)
4. Bianca Elissa
8. Lára Einarsdóttir ('79)
8. Andrea Mist Pálsdóttir
9. Sandra Mayor
10. Lára Kristín Pedersen
11. Arna Sif Ásgrímsdóttir (f)
22. Hulda Ósk Jónsdóttir ('59)
24. Hulda Björg Hannesdóttir
25. Heiða Ragney Viðarsdóttir
27. Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir

Varamenn:
1. Harpa Jóhannsdóttir (m) ('46)
2. Rut Matthíasdóttir
9. Karen María Sigurgeirsdóttir ('59)
19. Agnes Birta Stefánsdóttir
22. Iris Achterhof

Liðsstjórn:
Halldór Jón Sigurðsson (Þ)
Andri Hjörvar Albertsson (Þ)
Silvía Rán Sigurðardóttir
Saga Líf Sigurðardóttir
Anna Catharina Gros
Christopher Thomas Harrington

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Sandra Dögg klárar þennan leik með skoti lengst yfir markið! Skemmtilegum leik lokið hér á Þórsvelli. KR stelpur geta verið mjög svekktar með að hafa ekki tekið öll stigin úr þessum leik, en þær spiluðu seinni hálfleikinn afar agað, náðu marki snemma og gáfu fá færi á sér. En Þór/KA liðið þarf að spila margfalt betur til þess að eygja von um að halda í við toppliðin.
93. mín
KATRÍN ÓMARS Í DAUÐAFÆRI!! Fær boltann inn fyrir og reynir að vippa yfir Hörpu en Arna Sif kemur á síðustu stundu og þrumar boltanum burt!
91. mín
5 mínútum bætt við. Fáum við sigurmark?
90. mín
Gott færi hjá KR! Ásdís Karen leggur hann á Betsy sem að fær boltann í mjög góðu skotfæri rétt fyrir utan vítateig Þór/KA. Hún neglir boltanum hins vegar yfir og er vægast sagt ósátt með sjálfa sig.
89. mín
Inn:Hlíf Hauksdóttir (KR) Út:Guðmunda Brynja Óladóttir (KR)
88. mín MARK!
Karen María Sigurgeirsdóttir (Þór/KA)
Stoðsending: Andrea Mist Pálsdóttir
KAREN MARÍA JAFNAR!!! Frábært mark hjá henni, fær boltann frá Andreu á vinstri kantinum og leikur inní teig, klippir inn og skrúfar boltann í fjærhornið! Óverjandi fyrir Birnu!! 2-2!
85. mín
Akureyrarstelpur eiga í basli með að byggja upp almennilegt spil. 5 mínútur eftir og nú fer hver að verða síðastur! KR liðið hefur spilað mjög skipulagðan leik í seinni hálfleik og ekkert sem bendir til þess að Þór/KA liggi í færum í restina.
81. mín
KR fær aukaspyrnu útá kanti. Ná þær að gera útum leikinn? Svarið er þvert nei. Guðmunda með rosa lélega aukaspyrnu lengst yfir markið.
79. mín
Inn:Saga Líf Sigurðardóttir (Þór/KA) Út:Lára Einarsdóttir (Þór/KA)
Síðasta skipting heimaliðsins.
78. mín
Aukaspyrnan er slök og endar með markspyrnu KR.
77. mín
Guðmunda brýtur á Andreu rétt fyrir utan vítateig KR, útá hægri kantinum. Þórdís Hrönn býr sig undir að taka spyrnuna.
75. mín Gult spjald: Birna Kristjánsdóttir (KR)
Fyrir leiktöf.
74. mín
Karen María þrumar boltanum í andlitið á Lilju Dögg og leikurinn er stoppaður. Þetta hefur svo sannarlega ekki verið þægilegt.
67. mín
Þetta er mjög hugmyndasnautt þessa stundina hjá Þór/KA. KR eiga í litlum vandræðum með að verjast sóknaraðgerðum þeirra.
65. mín
Inn:Þórunn Helga Jónsdóttir (KR) Út:Grace Maher (KR)
Grace virðist vera að að drepast í öxlinni og Þórunn Helga kemur inná fyrir hana.
64. mín
Lítið að gerast þessa stundina. Tijana ber boltann upp vinstri kantinn og sér engan með sér svo að hún á herfilegt skot langt yfir mark Þór/KA.
61. mín
Grace Maher slasaðist eitthvað í baráttunni við Andreu Mist og þurfti smá aðhlynningu, en virðist tilbúin að koma aftur inná.
59. mín
Inn:Karen María Sigurgeirsdóttir (Þór/KA) Út:Hulda Ósk Jónsdóttir (Þór/KA)
Karen kemur inn á vinstri kantinn í stað Huldu.
58. mín
Hulda Ósk gerir ágætlega í að komast upp vinstri kantinn og sendir boltann fyrir á Andreu, en hún nær ekki skoti á markið og KR koma boltanum í burtu.
57. mín
KR liðið hefur byrjað þennan seinni hálfleik af krafti og hafa ekki leyft Akureyringum að byggja upp almennilegt spil.
50. mín
Harpa Jóhannsdóttir meiðist lítillega en er staðin upp og leikurinn hefst að nýju.
49. mín MARK!
Katrín Ómarsdóttir (KR)
KR KOMAST YFIR!!! Guðmunda fær sendingu inn fyrir frá Söndru Dögg og neglir á markið, Harpa ver skotið ágætlega en það vill ekki betur til en svo að boltinn dettur fyrir fætur Katrínar sem að gerir engin mistök og setur boltann í mitt markið af stuttu færi! 1-2 fyrir KR!!
47. mín
Katrín gerir vel í að snúa Biöncu af sér og leggur hann útá kant á Ásdísi, sem að gerir sig seka um klaufalega rangstöðu.
46. mín
Leikur hafinn
Þór/KA hefja síðari hálfleik.
46. mín
Inn:Harpa Jóhannsdóttir (Þór/KA) Út:Bryndís Lára Hrafnkelsdóttir (Þór/KA)
Markmannsskipting hjá Þór/KA. Bryndís væntanlega meidd.
45. mín
Hálfleikur
Skemmtilegum fyrri hálfleik lokið! Það er ekki hægt að segja að annað liðið hafi beinlínis verið betra í þessum leik, þar sem að bæði lið hafi fengið úrvals færi til þess að bæta við mörkum. Vonandi fáum við meira af því sama í seinni hálfleik. Veðurguðirnir leika allavega ennþá við okkur, þó að sólin sé á bakvið ský einmitt þessa stundina.
45. mín
Hulda virðist vera klár í slaginn og kemur aftur inná. Gott mál!
44. mín
Hulda Björg Hannesdóttir liggur eftir og þarf aðstoð sjúkraþjálfara.
43. mín
Ásdís Karen með fyrirgjöf á Katrínu sem að nær ekki almennilegu skoti og Þór/KA koma boltanum í horn. Fínn kafli hjá KR þessa stundina!
42. mín
Þórdís Hrönn reynir skot á vítateigshorninu vinstra megin, en það er langt yfir markið.
40. mín
Ásdís Karen með gott skot af 30 metra færi sem að Bryndís Lára ver vel í horn! Sjálfsagt að reyna þessar neglur.
38. mín
Guðmunda setur boltann inní teig á nautsterka Katrínu sem að heldur Biöncu frá sér, til þess að reyna að koma skoti á markið, en Bianca nær með allri sinni þrjósku að tækla boltann í horn.
35. mín
KR eiga ekki í miklum erfiðleikum með að spila í gegnum Akureyrarstelpur þessa stundina! Boltanum er þrætt inní teig á Katrínu Ómars sem að snýr og skýtur að marki Þór/KA en skotið er blokkað.
33. mín
Ásdís Karen sleppur ein í gegn!! Fær sendingu frá Guðmundu, sem átti góðan sprett og virtist sendingin hættulítil en Bryndís Lára virtist límd við jörðina og var mjög sein að koma á móti boltanum. Ásdís fékk því kjörið tækifæri til þess að koma KR yfir, en setti boltann framhjá. Hálf furðulegt að staðan sé enn 1-1!
31. mín
Andrea Mist með þrumufleyg í þverslána!! Hulda Ósk sneri laglega af sér varnarmann, lagði hann á Þórdísi sem setti boltann á Andreu, sem var rétt fyrir utan vítateig KR og átti bylmingsskot sem að endaði í slá KR marksins!
29. mín
Andrea Mist í frábæru færi!!! Sandra Mayor stakk boltanum inn fyrir á hana og hún var ein gegn Birnu. Skaut lágu skoti á markið en Birna varði það til baka á Andreu, en hún reyndi svo að lyfta boltanum yfir markmann KR en boltinn fór framhjá. Leikurinn er að lifna aftur við!
27. mín
ÞVÍLÍKA DAUÐAFÆRIÐ HJÁ KR!! Betsy Doon Hassett setti háan bolta af hægri kantinum inná teig sem að Katrín Ómarsdóttir tók meistaralega niður nánast inní markteig, sneri á punktinum og lagði hann fyrir fætur Guðmundu Brynju fyrir galopnu marki af sirka 5 metra færi. Guðmunda hittir boltann ægilega illa og setur hann langt framhjá markinu. Ótrúlegt klúður!
24. mín
Síðan að Þórdís fékk færið hefur lítið gerst. Mikil barátta, en ekki mikið um gæði. Leikurinn hefur aðeins dofnað eftir mjög fjörlega byrjun.
14. mín
DAUÐAFÆRI hjá Þórdísi Hrönn!! Sandra Mayor stakk boltanum yfir vörn KR á Þórdísi sem að var alein og yfirgefin, en hún virtist ekki vita hvernig hún ætlaði að klára færið og Birna varði laflausa tilraun hennar í horn. Þetta var stór séns fyrir Þór/KA sem að virðast vera að taka öll völd á vellinum.
13. mín
Góður sprettur hjá Huldu endar með því að hún leggur boltann útí teiginn á Þórdísi Hrönn sem að á skot um miðjan vítateig KR, en öll KR vörnin grýtir sér fyrir skotið og verst vel! KR-ingar koma svo boltanum í burtu.
9. mín Mark úr víti!
Sandra Mayor (Þór/KA)
ÞRÆLÖRUGG Á PUNKTINUM!! Setur Birnu í vitlaust horn og leggur boltann í hægra hornið. 1-1 í fjörugum leik!
8. mín
VÍTASPYRNA DÆMD!! Sandra Mayor er klippt niður inní teig og engin spurning um að um vítaspyrnu var að ræða! Því miður sá ég ekki hver tæklaði Söndru, en hún gat ekki maldað mikið í móinn.
3. mín MARK!
Ásdís Karen Halldórsdóttir (KR)
Stoðsending: Katrín Ómarsdóttir
KR ERU KOMNAR YFIR!!! Ásdís Karen fær boltann frá Katrínu Ómars útá hægri kanti og leikur inní teig, á skot/fyrirgjöf sem að flýgur yfir Bryndísi í fjærhornið! Ef að þetta var ætlunin, þá var þetta fáránlega vel gert hjá henni, en það breytir engu, boltinn endar inni og það er allt sem að Ásdís kærir sig um! 1-0 KR!
1. mín
Þór/KA fá færi hér strax í upphafi! Hulda Björg á frábæra stungusendingu á Söndru Mayor, sem ætlar framhjá Birnu en markmaður KR gerir mjög vel í að slæma hendi í boltann og stöppa Mayor. Glimrandi byrjun hjá Þór/KA.
1. mín
Leikur hafinn
KR hefja leik.
Fyrir leik
Leikmenn liðanna leiða heilan helling af ungum knattspyrnustelpum inná völlinn. Gera má ráð fyrir því að þær séu þáttakendur í Greifamóti KA. Stjörnur framtíðarinnar!
Fyrir leik
Þjálfari KR, Bojana Besic er varamarkmaður liðsins í dag. Hún spilaði sem miðvörður á sínum ferli sem leikmaður en er greinilega kattliðug á milli stanganna!
Fyrir leik
Ein breyting hjá KR-ingum frá síðasta leik. Þórunn Helga Jónsdóttir fær sér sæti á bekknum og Betsy Doon Hassett kemur í hennar stað í byrjunarlið Vesturbæjarliðsins. Þór/KA heldur sama byrjunarliði frá 0-1 útisigrinum á Selfyssingum.
Fyrir leik
Frá því liðin mættust fyrst í efstu deild árið 2000 hafa þau spilað 24 leiki í deildinni.

Þór/KA hefur unnið 14 þeirra, KR 9 og einum hefur lokið með jafntefli.

KR hefur reyndar vinninginn í skoruðum mörkum í viðureignum liðanna því þær hafa skorað 66 mörk en Þór/KA 47.
Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Erna Guðrún Magnúsdóttir fyrirliði FH spáði í leikinn á Fótbolta.net

Þór/KA 3 - 1 KR
KR lenti illa í því í seinasta leik á móti Keflavík og vilja hefna fyrir það en Þór/KA eru sterkar á heimavelli. Borgarstjórinn kemur heimamönnum í 2-0 en KR-ingar minnka munin með marki frá Katrínu Ómars og gefur KR-ingum von. Þórdís skilar sigrinum í höfn og kemur Þór/KA í 3-1
Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Þór/KA er í 3. sæti deildarinnar með 12 stig en 6 stigum frá toppliðum Vals og Breiðabliks.

KR er í botnsæti deildarinnar, hefur aðeins unnið einn leik í sumar og tapað hinum fimm.
Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Góðan daginn og verið velkomin í beina textalýsingu frá viðureign Þórs/KA og KR í 7. umferð Pepsi Max-deildar kvenna.

Leikurinn hefst 14:00 á Þórsvelli og hér að neðan koma allar upplýsingar um leið og þær gerast.
Hafliði Breiðfjörð
Byrjunarlið:
23. Birna Kristjánsdóttir (m)
3. Ingunn Haraldsdóttir (f)
3. Sandra Dögg Bjarnadóttir
4. Laufey Björnsdóttir
7. Guðmunda Brynja Óladóttir ('89)
8. Katrín Ómarsdóttir
10. Betsy Doon Hassett
11. Ásdís Karen Halldórsdóttir
14. Grace Maher ('65)
16. Lilja Dögg Valþórsdóttir
21. Tijana Krstic

Varamenn:
29. Ingibjörg Valgeirsdóttir (m)
2. Kristín Erla Ó Johnson
9. Hlíf Hauksdóttir ('89)
20. Þórunn Helga Jónsdóttir ('65)
22. Íris Sævarsdóttir
27. Halla Marinósdóttir

Liðsstjórn:
Bojana Besic (Þ)
Hugrún Lilja Ólafsdóttir
Guðlaug Jónsdóttir
Sædís Magnúsdóttir
Gísli Þór Einarsson
Ragna Lóa Stefánsdóttir

Gul spjöld:
Birna Kristjánsdóttir ('75)

Rauð spjöld: