Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 17. júlí 2019 11:00
Magnús Már Einarsson
Barton ákærður fyrir líkamsárás eftir leik
Mynd: Getty Images
Joey Barton, stjóri Fleetwood, hefur verið ákærður fyrir líkamsárás í leikmannagöngunum eftir leik gegn Barnsley í apríl.

Lögreglan staðfesti þetta í dag en Barton á að mæta fyrir dómstóla þann 9. október.

Eftir leikinn var Barton sakaður um að hafa ráðist á Daniel Stendel stjóra Barnsley.

Barton neitaði þeim ásökunum en nú hefur hann verið ákærður fyrir líkamsárás.

Fleetwood mætir Port Vale í vináttuleik í kvöld en Barton verður væntanlega á sínum stað á hliðarlínunni þar.
Athugasemdir
banner
banner
banner