Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 17. júlí 2019 10:30
Magnús Már Einarsson
Emery vill fá mjög dýra leikmenn til Arsenal
Ætlar að opna veskið.
Ætlar að opna veskið.
Mynd: Getty Images
Unai Emery, stjóri Arsenal, vonast til að geta fengið mjög dýra og öfluga leikmenn til félagsins í sumar.

Sögusagnir hafa verið um að Emery hafi 40 milljónir punda til að eyða í leikmenn en miðað við ummæli hans er hann með talsvert meira fjármagn til að spila úr.

„Markmið okkar er að fá þrjá eða fjóra leikmenn sem bæta hópinn og liðið virkilega mikið," sagði Emery á fréttamannafundi í dag.

„Við erum með mjög góða leikmenn og mjög góða unga leikmenn sem geta bætt sig og skilað góðum frammistöðum með okkur. Aðrir leikmenn geta komið hingað til að hjálpa okkur."

„Við erum mjög kröfuharðir og við erum að tala um möguleika á að fá mjög stóra og dýra leikmennn."

Athugasemdir
banner
banner
banner