Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 17. júlí 2019 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Man City reynir að losa sig við Mangala
Eliaquim Mangala má fara frítt
Eliaquim Mangala má fara frítt
Mynd: Getty Images
Manchester City ætlar að losa sig við franska varnarmanninn Eliaquim Mangala frá félaginu en Daily Mail greinir frá þessu í kvöld.

Mangala er 28 ára gamall og var keyptur fyrir metfé árið 2014 frá Porto en þá kostaði hann 42 milljónir punda.

Nú fimm árum síðan má hann fara frítt frá félaginu þó svo hann eigi ár eftir af samningnum.

Hann fór ekki með City til Kína og vill Pep Guardiola, stjóri liðsins, losa sig við hann sem fyrst.

Félög í Portúgal og Tyrklandi hafa sýnt honum áhuga en Porto er sagt hafa mikinn áhuga á að fá hann aftur.

Hann hefur spilað 79 leiki fyrir félagið á fimm árum sínum þar en auk þess hefur hann farið tvisvar á láni til Valencia og Everton.
Athugasemdir
banner
banner