Stuðningsmenn Newcastle hafa loksins fengið einhverjar gleðifréttir í dag en félagið er nálægt því að kaupa framherjann Joelinton frá Hoffenheim.
Joelinton er 22 ára gamall Brasilíumaður en hann hefur verið hjá Hoffenheim síðan 2015.
Joelinton er 22 ára gamall Brasilíumaður en hann hefur verið hjá Hoffenheim síðan 2015.
Á síðasta tímabili skoraði hann sjö mörk í 26 leikjum í þýsku Bundesligunni.
Stuðningsmenn Newcastle eru ósáttir við ráðningu á Steve Bruce sem knattspyrnustjóra.
Ekki bætti úr skák að liðið tapaði 4-0 gegn Wolves í æfingaleik í Kína í dag.
Athugasemdir