mið 17. júlí 2019 10:22
Magnús Már Einarsson
Seri á leið til Galatasaray
Mynd: Getty Images
Tyrkneska félagið Galatasaray er að fá miðjumanninn Jean Michael Seri á láni frá Fulham.

Hinn 27 ára gamli Seri vill fara frá Fulham eftir fall úr ensku úrvalsdeildinni.

Napoli, Roma og AC Milan hafa einnig áhuga á Seri en Galatasaray er að vinna kapphlaupið um hann.

Fulham keypti Seri síðastliðið sumar og miklar vonir voru bundnar við hann.

Hann náði hins vegar ekki að hjálpa liðinu að bjarga sér frá falli.

Athugasemdir
banner
banner
banner