Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 17. júlí 2019 09:11
Magnús Már Einarsson
Tveir í bann hjá HK og ÍBV
Erlingur Agnarsson fékk rauða spjaldið gegn Fylki og verður í banni gegn Val.
Erlingur Agnarsson fékk rauða spjaldið gegn Fylki og verður í banni gegn Val.
Mynd: Raggi Óla
HK og ÍBV verða bæði án tveggja leikmanna vegna leikbanns í 13. umferð Pepsi Max-deildarinnar.

Ásgeir Marteinsson og Bjarni Gunnarsson verða í banni hjá HK gegn FH á mánudaginn.

Sigurður Arnar Magnússon og Víðir Þorvarðarson verða í banni þegar botnlið ÍBV heimsækir Fylki á sunnudaginn.

Steinþór Freyr Þorsteinsson missir af leik KA og ÍA á sunnudag eftir rauða spjaldið gegn HK.

Erlingur Agnarsson verður síðan í banni þegar Víkingur R. mætir Val á sunnudaginn en hann fékk rauða spjadið gegn Fylki í fyrrakvöld.

Mundu að breyta liðinu í Draumaliðsdeidl Eyjabita
Athugasemdir
banner
banner
banner