Ljóst var fyrir leik kvöldsins að Vals biði ærið verkefni gegn Maribor sem vann fyrri leik liðanna, 0-3, á Hlíðarenda fyrir viku síðan.
Valur fékk aðeins á sig tvö mörk í kvöld og átti þokkalegan leik. Tapið þýðir að Valur er dottið úr leik í forkeppni Meistaradeildarinnar og fer í 2. umferð í forkeppni Evrópudeildarinnar.
Valur fékk aðeins á sig tvö mörk í kvöld og átti þokkalegan leik. Tapið þýðir að Valur er dottið úr leik í forkeppni Meistaradeildarinnar og fer í 2. umferð í forkeppni Evrópudeildarinnar.
Þar mætir liðið búlgarska liðinu Ludogorets, sem tapaði frekar óvænt fyrir Ferencvaros frá Ungverjalandi í kvöld.
Ludogorets er mjög sterkt lið og ljóst að verk Valsara verður ekki mikið þægilegra í næstu viku. Valur spilar fyrri leikinn á heimavelli.
Þá mætir HB, liðið sem Heimir Guðjónsson þjálfar, Linfield sem Rosenborg sló út, 6-0 samanlagt.
Athugasemdir