KDA KDA
 
fim 24.feb 2022 08:30 Magnús Valur Böðvarsson
Vandamálið miklu stærra og útbreiddara Nýverið skrifaði formaður knattspyrnráðs Stjörnunnar áhugaverðan pistil þar sem hann fór afar ófögrum orðum yfir eitt bæjarfélag og ástand valla þar í bæ, sama um hvort gras eða gervigras væri að ræða. Pistillinn á svo sem algjörlega rétt á sér en vandamálið er miklu stærra en það að þetta sé einungis eitt bæjarfélag sem sé að glíma við slíka vanrækslu. Vandamálið er miklu stærra. Meira »
fim 24.feb 2022 06:00 Aðsendir pistlar
Ég óska eftir endurkjöri

Í haust tók ný stjórn við hjá Knattspyrnusambandi Íslands. Ástæðu þess að stjórnarskipti urðu þekkja flestir og ætla ekki að kryfja það mál hér. Ný stjórn tók við á erfiðum tíma og fyrstu verk snéru að þeim málum sem leiddu til stjórnarskiptanna. Vinna við að fara yfir þessi mál var sett af stað og starfshópar skipaðir. Þessi vinna er enn í gangi og allir eru sammála um að koma verkferlum og reglum þannig fyrir að allt sé skýrt ef ofbeldismál koma upp.

Meira »
mið 23.feb 2022 18:00 Aðsendir pistlar
Tölum um knattspyrnu

Um helgina stendur fyrir dyrum kjör til stjórnar og formanns Knattspyrnusambands Íslands. Mesta athyglin er á formannskjörinu – og skyldi nú engan undra. Síðustu tveir formenn voru ekki beint reisulegir þegar þeir létu af embætti. En látum það vera. Tölum um knattspyrnu.

Meira »
mið 23.feb 2022 10:47 Aðsendir pistlar
Skilum skömminni Sem forsvarsmaður og sjálfboðaliði í einu öflugasta félagi landsins hef ég fylgst með allri umræðu um KSÍ undanfarna mánuði. Næstkomandi helgi mun ég sitja ársþing sambandsins þar sem verður kjörin nýr formaður og ný stjórn. Fráfarandi stjórnarmönnum þakka ég vinnuna sem þeir hafa lagt á sig undir afar erfiðum aðstæðum. Þeir eiga hrós skilið. Meira »
mán 21.feb 2022 17:05 Aðsendir pistlar
Það borgar sig að fjárfesta í knattspyrnukonum Þann 30. mars næstkomandi tekur Barcelona á móti Real Madrid í 8-liða úrslitum Meistaradeildar kvenna í knattspyrnu. Uppselt varð á leikinn á þremur dögum, um 85 þúsund miðar seldir. Lið Barcelona sem varð atvinnumannalið árið 2015, er nú orðið stórveldi og óhætt að kalla það eitt besta lið í heimi um þessar mundir. Svipaða sögu er hægt að segja af öðrum liðum víða um Evrópu, þar sem fjárfesting í kvennaliðum félaganna hefur skilað sér margfalt til baka. Áhorfendatölur rjúka upp og loksins geta ungar knattspyrnukonur fundið sér kvenkyns fyrirmyndir og elt drauma sem áður voru ekki til staðar. Meira »
mið 16.feb 2022 16:10 Aðsendir pistlar
Flokka- og mótafyrirkomulag Árið 2021 spiluðu strákar og stelpur í 5. flokki á Íslandi 11 deildarleiki í Íslandsmótinu í fótbolta. Í 4. flokki spiluðu strákarnir 11 leiki en stelpurnar 14, í 3. flokki voru leikirnir 14 á bæði kyn og í 2. flokki spiluðu strákarnir 20 leiki og stelpurnar 12.

Sum lið fengu vissulega fleiri leiki ef þau náðu að komast í úrslitakeppni hvers flokks.

Mikið er rætt um að fjölga leikjum í mfl.kk og mfl kvenna í Íslenskum fótbolta. Það er umræða sem á svo sannarlega rétt á sér. Meira »
þri 14.des 2021 13:30 Magnús Valur Böðvarsson
Um keppnisgervigras - Sorglegt með ÍBV Uppbygging knattspyrnuvalla á Íslandi hefur á undanförnum 15 árum verið á einn veg. Plast. Nánar tiltekið gervigras. Núna nýjast voru Vestmannaeyjar og Grindavík að bætast við þann lista sem ætla færa sig til þess vegar að setja keppnisvelli sína á gervigras. Margir hafa litið á greinarhöfund sem andstæðing gervigrassins en svo er alls ekki enda þurfum við gervigras til þess að geta æft allan ársins hring.

Hinsvegar er það svo að ég er algjörlega mótfallinn því að setja gervigras á keppnisvellina. Þar er í raun og veru gríðarlegur munur þarna á. Hver er sá munur og hvaða spurningar geta vaknað upp? Meira »
fim 09.des 2021 08:00 Heiðar Birnir Torleifsson
Leikmenn með fjölbreytta virkni Að þjálfa unga leikmenn í sérstökum leikstöðum er mikil tímaskekkja að mínu mati og beinlínis röng þjálfun! Meira »
þri 19.okt 2021 06:00 Heiðar Birnir Torleifsson
Þrjú stig Í æfinga og kennsluáætlun Coerver Coaching viðhöfum við einstaklingsmiðaðar æfingar og leikæfingar í smáum hópum. Æfingar eru leikgrænar með auknu erfiðleikastigi og hjálpa þannig leikmanninum að þjálfa með sér leikskilning og getu til ákvarðanna við síbreytilegu ástandi leiksins. Meira »
sun 10.okt 2021 12:30 Matthías Freyr Matthíasson
Ert þú tólfta manneskjan? Ég ætla að leyfa mér að draga þá barnalegu ályktun fyrst þú ert að lesa Fótbolti.net að þá séu meiri líkur en minni á að þú sért fótboltaáhugamanneskja. Fyrst ég geng út frá því þá langar mig til að spyrja þig, hvar varst þú 27. júní 2016? Ok, kannski ekki sanngjarnt að tala um dagsetningu, en hvar varst þú þegar karlalandslið Íslands var að spila við England á EM 2016? Meira »
mið 06.okt 2021 10:07 Elvar Geir Magnússon
Þjóðin gerir kröfu á sigur þó þjálfarinn geri það ekki Það kveður við nýjan tón hjá íslenska landsliðinu og ummæli Arnars Þórs Viðarssonar á fréttamannafundi í gær um að þjálfararnir myndu aldrei gera kröfu á sigur hafa fallið í ansi grýttan jarðveg á samfélagsmiðlum.

„Nei, við gerum aldrei kröfu á sigur," sagði Arnar meðal annars á fundinum. Það skal þó enginn efast um að stefnan hjá Arnari sé sett á að vinna leikinn gegn Armeníu á föstudag: „Við trúum því að við getum tekið þrjú stig út úr næsta leik og við einbeitum okkur að því núna." Meira »
sun 12.sep 2021 10:00 Garðar Örn Hinriksson
Hver ætlar að bjarga okkur í dag ef einhver ræðst á okkur? Þarna... hverja eigum við að setja í gæsluna í dag? sagði Kalli og klóraði sér í hausunum. Meira »
fim 09.sep 2021 19:30 Þórir Hákonarson
Framtíð hreyfingarinnar í húfi Öllum er ljós sú umræða sem hefur verið um stjórn, leikmenn og starfsmenn KSÍ undanfarnar vikur og verður í því tilliti engin umræða í þessum pistli um þau alvarlegu mál sem augljóslega hafa skaðað okkar hreyfingu í öllu hvernig sem á það er litið.

Það liggur fyrir að boðað hefur til aukaþings stærsta sérsambandsins innan íþróttahreyfingarinnar vegna þeirra hræringa sem orðið hafa innan okkar raða, formaðurinn hefur sagt af sér og öll stjórn KSÍ og því gríðarlega mikilvægt að vel sé á málum haldið næstu misserin til þess að auka tiltrú og traust okkar mikilvægu hreyfingar á næstu misserum. Hvernig á þá að halda á málum? Meira »
fös 06.ágú 2021 11:38 Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ein skemmtilegasta upplifun sumarsins Undirritaður textalýsti í gær leik Breiðabliks og Aberdeen í forkeppni Sambandsdeildarinnar. Leikurinn var mikil skemmtun, sérstaklega fyrri hálfleikurinn og stemningin á vellinum gerði þetta að mjög skemmtilegri upplifun, ein skemmtilegasta fótboltaupplifun sumarsins hjá undirrituðum.

Leikurinn fór fram á Laugardalsvelli og var undirritaður skeptískur á að það tækist að mynda góða stemningu á vellinum þar sem takmarkað magn miða voru í boði og ekki máttu allir sitja á sama stað vegna takmarkanna. Meira »
mán 14.jún 2021 23:40 Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Vi er røde Vi er hvide, áfram Danmörk! Ég hef aldrei haldið með Danmörku í neinu. Ég veit ekki alveg af hverju. Ég hef nokkrum sinnum farið til Danmerkur og alltaf skemmt mér vel; ég kann vel við landið. Sem Íslendingi hefur mér hins vegar verið kennt það að Daninn sé stóri og vondi frændinn.

Við höfum öll þurft að læra tungumálið þeirra - með misjöfnum árangri - en flestir Danir kunna ek kert í okkar máli; stóri frændinn. Meira »
mið 09.jún 2021 12:50 Elvar Geir Magnússon
Jákvæður haustverkur fyrir Arnar Vináttulandsleikir hafa í gegnum ár gullkynslóðar Íslands ekki verið merkilegur tebolli. Liðið hefur skinið skærast þegar sem mest er undir og í gegnum tíðina hafa flestir þeir sem fengu tækifæri í vináttuleikjunum ekki náð að gera tilkall í að brjóta sér leið inn í liðið.

Sú umræða var oftast ríkjandi eftir vináttulandsleiki að þeir þóttu sýna og sanna að staða okkar burðarása væri óhagganleg. Það varð óumdeilt hvernig okkar besta lið væri skipað. Meira »
þri 04.maí 2021 14:47 Hafliði Breiðfjörð
Uber á Íslandi og gulur bíll! Ímyndum okkur breytta stöðu á leigubílamarkaði. Uber fær leyfi til að stunda starfsemi á Íslandi, en þar sem fyrirtækið er erlent þarf það ekki að greiða skatta hér á landi eða fara eftir íslenskum lögum um leigubílaþjónustu. Bílstjórar þeirra mega selja áfengi og hægt er að veðja á íþróttaviðburði hjá þeim. Meira »
lau 17.apr 2021 09:30 Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
England á EM - Þessa myndi ég taka með Því miður mun Ísland ekki taka þátt á Evrópumótinu í sumar. Við rétt misstum af því að komast á þriðja stórmótið í röð, en við skulum ekki vera að hugsa of mikið um það. Meira »
mið 07.apr 2021 14:10 Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ekki bara litið framhjá Viðari - Er ennþá kergja? Það var mikið rætt um af hverju Viðar Örn Kjartansson, leikmaður Vålerenga, var ekki í íslenska landsliðshópnum í síðasta landsleikjaglugga. Einnig var einhver umræða um þá Guðmund Þórarinsson, leikmann New York City FC, og Emil Hallfreðsson, leikmann Padova. Emil hefur verið í hópnum á undanförnum árum en Guðmundur ekki spilað alvöru landsleik á sínum ferli. Meira »
fös 02.apr 2021 10:37 Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Þórunnartún 1 - „Algjörlega ólöglegt"? Jú takk, einni nótt lokið og fyrsti dagur af fimm hafinn í Þórunnartúni eitt. Undirritaður kom til landsins frá Ungverjalandi, með millilendingu í Zurich, í gærkvöldi.

Í fluginu var haldið ákveðni skiptingu, nokkkrar sætaraðir, milli þeirra sem hófu ferðina í Ungverjalandi og þeirra sem komu í vélina í Zurich. U21 árs landsliðið var í Györ á lokamóti Evrópumótsins en A-landsliðið hafði verið í Þýskalandi, Armeníu, Sviss og Liechtenstein á sínu ferðalagi. Undirritaður fylgdi U21 árs liðinu eftir sem fréttamaður. Við komu í Leifsstöð var skiptingunni haldið. Meira »