EKTA
INDVERSKUR
MATUR

image description
image description
Pantaðu og taktu með og fáðu ekta indverska upplifun við stofuborðið heima, eða fáðu þér sæti hjá okkur í rólegu andrúmslofti sem sækir innblástur frá litríkri og fjölbreytilegri menningu Indlands.

Hádegi

Í hádeginu bjóðum við upp á vefjur, pizzur, thali og margt fleira. Hádegismatseðillinn er í boði alla virka daga til 16.

Kvöld

Finna má fjölbreytt úrval rétta á kvöldmatseðli. Við afgreiðum kvöldmat frá kl. 16:00 alla virka daga og frá kl. 17:00 um helgar.

Tilboð

Tilboðin okkar eru á kvöldmatseðli og ætluð fyrir að minnsta kosti tvo til þess að fá góða blöndu af réttum. Skammtastærðir fara eftir fjölda.

Indverskt í 20 ár

Hraðlestin er fjölskyldurekinn veitingastaður á fjórum stöðum. Öll okkar krydd eru sérinnflutt frá Indlandi og blönduð á staðnum af indverskum, faglærðum kokkum.

Skólabörnin í Coorg

SKS skólinn á Suður-Indlandi treystir á frjáls framlög til að geta veitt bágstöddum börnum úr þorpum Coorg grunnmenntun við góða aðstöðu. Nemendur fá kennslu, bækur, klæði og fæði hvern dag, þökk sé velunnurum. Hraðlestin hefur styrkt SKS frá stofnun.

Hópar og veislur

Eldhúsið okkar getur útbúið glæsilegan veislumat fyrir jafnt standandi sem sitjandi samkomur með stuttum fyrirvara. Hægt er að panta tilboð eða af matseðli hér á vefnum, en fyrir stærri pantanir og smáréttabakka er best að senda tölvupóst á [email protected].

Staðirnir okkar

Grensásvegur

  • Grensásvegur 3 | 108 Reykjavík
  • S: 5783838

OPNUNARTÍMI:

  • MÁN-FÖS

    11:00-21:00

  • LAU-SUN

    17:00-21:00

BIÐTÍMI:

15-20 mín

Grandi

  • Grandagarður 23 | 101 Reykjavík

OPNUNARTÍMI:

  • MÁN-SUN

    11:00-21:00

  • Um helgar

    Brunch til 16:00

BIÐTÍMI:

15-20 mín

Hlíðasmári

  • Hlíðasmári 8 | 201 Kópavogur
  • S: 5783838

OPNUNARTÍMI:

  • MÁN-FÖS

    11:30-21:00

  • LAU-SUN

    17:00-21:00

BIÐTÍMI:

15-20 mín

Hverfisgata

  • Hverfisgata 64a | 101 Reykjavík
  • S: 5783838

OPNUNARTÍMI:

  • MÁN-SUN

    17:00-21:00

BIÐTÍMI:

15-20 mín