Joe & the Juice og UN Women skora á þig

UN Women á Íslandi og Joe & the Juice skora á þig að bæta 100 krónum við djúsinn á Joe & the Juice og Joebætir öðrum 100 krónum við, dagana 18.-31. janúar. Allur ágóði, alls 200 krónur af hverjum drykk, rennur óskipttil verkefna UN Women sem miða að því að uppræta ofbeldi gegn konum og stelpum.

Ofbeldi gegn konum og stelpum er eitt útbreiddasta mannréttindabrot í heiminum. Hvert einasta samfélagí heiminum er þjakað af kynbundnu ofbeldi – á meðan það viðgengst og refsileysi ríkir munu framfarirí jafnréttisbaráttunni ekki eiga sér stað. Þegar konur eru heilbrigðar eru samfélög heilbrigð.

Vissir þú að…

UN Women styrkir verkefni um allan heim sem miða að því að uppræta ofbeldi gegn konum og stelpum,tryggja þolendum viðeigandi aðstoð og stuðla að sterkari löggjöf og framfylgd laga um ofbeldi gegn konum.

UN Women styrkir  athvarf fyrir þolendur sýruárása í borginni Siem Reap í Kambódíu. Þar er konum tryggð læknisþjónusta, sálfræðiaðstoð og jafningjastuðning.

Chhean í eina sýruárásaathvarfinu í Siem Reap í Kambódíu


UN Women vinnur að því að uppræta limlestingu á kynfærum stúlkna í Gambíu með fræðslu og vitundarvakningu að vopni. Eftir margra ára baráttu var bann við limlestingu á kynfærum kvenna loks lögfest fyrir rúmu ári síðan.UN Women vinnur nú að því að efla framfylgd laganna í Gambíu auk fræðslu.

Ndyandin frá Gambíu ásamt dóttur sinni sem ætlar ekki að láta dóttur sína upplifa það sama og hún gekk í gegn.

Upprætum ofbeldið saman!