þri 17.apr 2018 12:00 Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð |
|
Spá Fótbolta.net - 9. sæti: ÍBV
Sérfræðingar Fótbolta.net spá því að bikarmeistarar ÍBV endi í 9. sæti í Pepsi-deildinni í sumar. Fréttaritarar spá í deildina en þeir raða liðunum upp í röð og það lið sem er í efsta sæti fær 12 stig, annað sæti 11 og svo koll af kolli niður í tólfta sæti sem gefur eitt stig. ÍBV endar í 9. sæti ef spáin rætist.
Shahab Zahedi Tabar fagnar marki með Sindra Snæ Magnússyni og Atla Arnarsyni.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
1. ?
2. ?
3. ?
4. ?
5. ?
6. ?
7. ?
8. ?
9. ÍBV 21 stig
10. Fylkir 19 stig
11. Víkingur R. 18 stig
12. Keflavík 15 stig
Um liðið: Eyjamenn fögnuðu bikarmeistaratitli í fyrra eftir 1-0 sigur á FH í úrslitaleik. ÍBV tekur því þátt í Evrópudeildinni í sumar. Falldraugurinn var á sveimi í Eyjum í fyrra en með sigri á KA í lokaumferð náði ÍBV að gulltryggja Pepsi-deildarsæti og 9. sætið í deildinni var niðurstaðan.
Þjálfari - Kristján Guðmundsson: Á sínu fyrstu ári í Eyjum náði Kristján að landa bikarmeistaratitli. Eyjamenn hafa ekki náð stöðugleika í þjálfaramálum í áraraðir en nú loksins nær ÍBV að halda sama þjálfara tvö tímabil í röð. Kristján er reyndur þjálfari en hann hefur meðal annars þjálfað Val, Keflavík, Leikni R, Þór og ÍR á ferli sínum auk þess sem hann gerði HB að færeyskum meisturum árið 2010.
Eru breytingarnar of miklar?
Styrkleikar: Eyjamenn sýndu það á síðasta tímabili að þeir geta unnið hvaða lið sem er á góðum degi þegar stemningin er mikil en góðu dögunum þarf að fjölga í ár ef fallbaráttan á ekki að vera niðurstaðan. Gunnar Heiðar Þorvaldsson og Shahab Zahedi eru framherjar sem geta skorað mörk ef þeir eru í stuði og þeir gætu reynst drjúgir í sumar. 3-5-2/5-3-2 kerfi Eyjamanna gaf góða raun síðari hlutann á síðasta tímabili og leikmenn liðsins hafa verið að venjast því betur og betur í vetur.
Veikleikar: Miklar breytingar hafa orðið á hópnum og lykilmenn eru horfnir á braut frá því á síðasta tímabili. Brian McLean, David Atkinson og Hafsteinn Briem spiluðu þrír í hjarta varnarinnar síðari hlutann í fyrra en enginn af þeim verður áfram og það munar um minna. Eyjamenn hafa ekki náð að spila jafnmarga leiki og önnur lið í vetur vegna vandræða í samgöngum auk þess sem sumir af erlendu leikmönnunum hafa ekki náð að vera mikið með. Því gæti liðið verið aðeins á eftir í undirbúningi sínum samanborið við keppinautana.
Lykilmenn: Shahab Zahedi og Sindri Snær Magnússon. Shahab er framherji frá Íran sem skoraði nokkur mikilvæg mörk síðari hlutann í fyrra og sýndi góð tilþrif. Hefur verið öflugur á undirbúningstímabilinu. Sindri er fyrirliði Eyjamanna og mikilvægur hlekkur á miðjunni.
Gaman að fylgjast með: Breki Ómarsson er efnilgur 19 ára framherji úr Eyjum sem hefur komið talsvert við sögu í vetur. Gæti fengið sinn skammt af mínútum í sumar.
Spurningamerkið: Tólf leikmenn sem komu við sögu hjá bikarmeisturunum í fyrra eru farnir annað. Nær Kristján að fylla í skörðin og kokka saman nægilega öflugt lið í Eyjum til að losna við falldrauginn í ár?
Völlurinn: Hásteinsvöll má oft finna á listum yfir mögnuðustu fótboltavelli heims. Einstakt umhverfi og náttúrufegurðin gerir það að verkum að upplifun hjá vallargestum magnast upp. Það er alltaf gaman að skella sér á völlinn og nýta daginn í Eyjum.
„Höfum áhuga á að vera ofar en í fyrra"
Þjálfarinn segir - Kristján Guðmundsson
„Liðið er að þéttast og það er mikill hugur í strákunum. Við erum að verða lið og ég er rosalega ánægður með hvað strákarnir eru jákvæðir, bjartsýnir og hafa mikla trú á verkefninu. Markmiðin eru komin á hreint og haldast inni í hópnum en það er ekki flókið að eitt af markmiðunum er að gera betur í deildinni en í fyrra. Við enduðum í 9. sæti í fyrra og við höfum áhuga á að vera ofar en það og taka framförum sem fótboltalið. Strákarnir hafa trú á verkefninu og það er góður andi núna."
Komnir:
Alfreð Már Hjaltalín frá Víkingi Ó.
Ágúst Leó Björnsson frá Stjörnunni
Dagur Austmann Hilmarsson frá Stjörnunni
Henry Rollinson frá Ástralíu
Priestley Griffiths frá Englandi
Yvan Erichot frá Kýpur
Farnir:
Alvaro Montejo Calleja í Þór
Andri Ólafsson hættur
Arnór Gauti Ragnarsson í Breiðablik
Brian McLean til DPMM FC
David Atkinson til Englands
Hafsteinn Briem í HK
Jónas Þór Næs til Færeyja
Matt Garner
Mikkel Maigaard Jakobsen til Noregs
Pablo Punyed í KR
Óskar Elías Zoega Óskarsson í Þór
Renato Punyed til Noregs
Sjá einnig:
Hin Hliðin - Dagur Austmann Himarsson (ÍBV)
Atli og Sindri í Eyjum - Enginn veit hvað mun koma frá okkur
Leikmenn ÍBV sumarið 2018:
Alfreð Már Hjaltalín 18
Atli Arnarson 30
Ásgeir Elíasson 13
Breki Ómarsson 9
Dagur Austmann 6
Derby Carillo 22
Devon Már Griffin 15
Eyþór Orri Ómarsson 33
Felíx Örn Friðriksson 26
Frans Sigurðsson 23
Gilson Correia 73
Gunnar Heiðar Þorvaldsson 34
Halldór Páll Geirsson 21
Henry Rollinson 27
Nökkvi Már Nökkvason 14
Kaj Leó í Bartalsstovu 7
Priestly David Keithley 8
Róbert Aron Eysteinsson 16
Sigurður Arnar Magnússon 2
Sindri Snær Magnússon 11
Shahab Zahedi 10
Yvan Erichot 19
Leikir ÍBV 2018:
28.apríl Breiðablik – ÍBV
6.maí ÍBV – Fjölnir
12.maí KA – ÍBV
17.maí Fylkir – ÍBV
21.maí ÍBV – FH
27.maí Keflavík – ÍBV
3.júní ÍBV – KR
9.júní Víkingur R. – ÍBV
13.júní ÍBV – Valur
19.júní Stjarnan – ÍBV
1.júlí ÍBV – Grindavík
7.júlí ÍBV – Breiðablik
22.júlí Fjölnir – ÍBV
29.júlí ÍBV – KA
4.ágúst ÍBV – Fylkir
12.ágúst FH – ÍBV
18.ágúst ÍBV – Keflavík
26.ágúst KR – ÍBV
2.september ÍBV – Víkingur R
16.september Valur – ÍBV
23.september ÍBV – Stjarnan
29.september Grindavík – ÍBV
Spámennirnir: Arnar Daði Arnarsson, Elvar Geir Magnússon, Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson, Hafliði Breiðfjörð, Magnús Már Einarsson, Magnús Þór Jónsson og Tryggvi Guðmundsson.
Athugasemdir