Grindavík er spáð spáð sjöunda sæti Pepsi-deildarinnar í sumar. Samhliða spánni er einn leikmaður í hverju liði sem sýnir á sér hina hliðina. Hjá Grindavík er það miðjumaðurinn Aron Jóhannsson sem kom frá Haukum í vetur.
Fullt nafn: Aron Jóhannsson
Gælunafn sem þú þolir ekki: chau lu ,var kallaður það heila tenerife ferð og nokkrum tímum betur
Aldur: 24 ára
Hjúskaparstaða: í sambandi
Hvenær lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki: árið er 2010, 15. Umferð, Kópavögsvöllur, fyrsti sigur Hauka það tímabilið.
Uppáhalds drykkur: Það er drykkurinn er kenndur er við fjöllin, Mountain Dew á Kentucky, Hafnarfirði.
Uppáhalds matsölustaður: Noodle Station, Bæjarhrauni.
Hvernig bíl áttu: I go you go we all go for aygo
Uppáhalds sjónvarpsþáttur: Peaky blinders og New girl.
Uppáhalds tónlistarmaður: Margir flottir þarna úti en ef ég ætti að velja einn þá yrði það Eminem
Uppáhalds samskiptamiðill: Ætli það sé ekki bara doðranturinn, Facebook.
Skemmtilegasti “vinur" þinn á Snapchat: Alexander Freyr(Ekki Alexander Frei unglingaþjálfari Basel) og Björgvin Stefánsson.
Hvað viltu í bragðarefinn þinn: Þrist,daimkurl og luxusidyfu í gamla jarðaberja takk
Hvernig hljómar síðasta sms sem þú fékkst: eitthvað varðandi spilakvöld
Hvaða liði myndir þú aldrei spila með: Eftir að hafa spilað með FH og Haukum held ég geti ekki sagt nei við neinu.
Besti leikmaður sem þú hefur mætt: Meira svona erfiðasti, Baldur Sig hljóp eitt sinn yfir mig í leik þegar ég var pjakkur.
Mest óþolandi leikmaður sem þú hefur mætt: Bjössi Hreiðars á æfingum, illviðráðanlegur í uppbótartímanun
Sætasti sigurinn: 1-0 á móti stjörnuprýddu 2.flokks liði FH í bikarnum árið 2011
Mestu vonbrigðin: 2 eða 3 bikarurslitatöp er að reyna gleyma
Uppáhalds lið í enska: úfff Arsenal
Ef þú fengir að velja einn leikmann úr öðru íslensku liði í þitt lið: ætli það sé ekki einhver valsarinn
Fyrsta verk ef þú yrðir formaður KSÍ: Hafa bókhaldið snarlokað og fela lykilinn fyrir almúganum.
Efnilegasti knattspyrnumaður/kona landsins: þórir Jóhann getur gert ýmislegt i framtíðinni og Alexandra Jóhannsdóttir
Fallegasti knattspyrnumaðurinn á Íslandi: Gunnlaugur Fannar, Alexander Freyr, Arnar Aðalgeirs og Gunni Gunn þurfa nuna að klunsa
Fallegasta knattspyrnukonan á Íslandi: hun er i Frakklandi
Hver er mesti höstlerinn í liðinu: Það sem gerist í klefanum helst í klefanum, ég ætla brjóta þá reglu og segja Nemanja Latinovic.
Uppáhalds staður á Íslandi: Æjjji veistu ég veit það ekki
Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik: Ég sá einu sinni Ingo sig ætla vera með eitthverja stæla við Andra Stein Birgisson , það var skemmtilegt
Hvað er það fyrsta sem þú gerir þegar þú vaknar: hoppa i föt
Fyrir utan knattspyrnu, fylgist þú með öðrum íþróttum: ekki að neinu viti en Körfubolti og nfl er uppáhalds , Handbolti af og til
Í hvernig fótboltaskóm spilar þú: Nike hypervenom eins og er en Vaporinn er i ruglinu a miðjunni
Í hverju varstu/ertu lélegastur í skóla: að lesa heila bók
Uppáhalds Eurovision lag frá upphafi: Úkraína 2007 !!
Vandræðalegasta augnablik: þegar eg söng “gordjöss” á sundlaugarbakkanum á oliva nova, nuddskýlu einni klæða
Hvaða þrjá leikmenn tækir þú með þér á eyðieyju: Gunna Þorsteins til að sleppa ,Brynjar Ásgeir fyrir húmör og i backup og ef allt klikkar Björgvin Stefansson til að borða þvi hann er 90kg af hreinu kjöti
Sturluð staðreynd um sjálfan þig: ég var einu sinni trommuleikari vintage caravan, taktu það á koddan!
Athugasemdir