Arsenal reynir við Monga og Barcola - Liverpool endurnýjar áhuga á Thuram - Tottenham vill Fernandes
banner
   sun 28. nóvember 2010 09:11
Hafliði Breiðfjörð
Heimild: NTG 
Diljá skoraði þrjú mörk fyrir NTG í æfingaferð í Tyrklandi
Kvenaboltinn
Mynd: Diljá Helgadóttir
Diljá Helgadóttir knattspyrnukona úr HK í Kópavogi skoraði þrjú mörk fyrir norska kvennaskólann NTG í 14-1 sigri á tyrkenska liðinu Antalyaspor í vikunni.

Diljá er við nám í norska fótbolta einkaskólanum NTG sem tengist Stabæ náið og var í keppnisferð með liðinu í Tyrklandi. Þær mættu Antalyaspor sem er um miðja tyrkensku deildina.

Það má segja að Diljá hafi byrjað leikinn með látum því það voru aðeins 36 sekúndur liðnar þegar hún var búin að koma liðinu yfir með skoti úr teignum og þá strax var ljóst að liðið var miklu sterkara.

Hún bætti svo öðru marki við skömmu síðar með skalla og skoraði svo einnig fjórða mark liðsins.

Diljá var í viðtali við Fótbolta.net í síðasta mánuði um skólann sem hún er í en hér að neðan er tengill á það viðtal.

Sjá einnig:
Fyrsti Íslendingur til þess að fara út í norskan fótboltaeinkaskóla.
Slapp