Heimild: BBC
Barcelona hefur í fyrsta sinn í 111 ára sögu sinni ákveðið að gera samning við styrktaraðila sem mun auglýsa framan á treyjum félagsins.
Barcelona hefur undanfarin ár borgað fyrir að hafa Unicef framan á treyjum sínum en nú hefur Katar Foundation samþykkt að borga 125 milljónir punda fyrir að auglýsa framan á treyjum félagsins til ársins 2016.

Samningurinn byrjar á næsta tímabili en Katar Foundation og Unicef munu bæði hafa merki sitt framan á búningunum.
Barcelona skuldar mikið en þessi samningur ætti að létta fjárhaginn hjá félaginu og mögulega gefa Pep Guardiola þjálfara pening til að kaupa leikmenn.
Samningurinn er einnig stærsti auglýsingasamnigurinn í fótboltanum en Barcelona mun fá 25 milljónir punda á hverjum tímabili frá Katar Foundation.
Bæði Manchester United og Real Madrid fá rúmar 20 milljónir punda frá sínum styrktaraðila en FC Bayern fær í kringum 23 milljónir punda á tímabili.