Heimild: Soccernet
Wojciech Szczesny gæti óvænt staðið á milli stanganna hjá Arsenal í stórleiknum geng Manchester United í kvöld.
Lukasz Fabianski er að glíma við meiðsli og ef hann verður ekki klár í slaginn þá gæti Szczesny fengið tækifærið.
Manuel Almunia er einnig klár í slaginn eftir meiðsli á olnboga en enskir fjölmiðlar halda að Arsene Wenger muni frekar gefa Szczesny tækifærið ef Fabianski spilar ekki.
Szczesny hefur ekki leikið áður leik í ensku úrvalsdeildinni með Arsenal.
Á síðasta tímabili stóð hann sig vel í láni hjá Brentford og í vetur hefur hann leikið tvo leiki í deildabikarnum með Arsenal.