Fjölnir tryggði sér í dag Íslandsmeistaratitilinn í Futsal en liðið lagði Víking Ólafsvík 3-2 í úrslitaleik á Álftanesi.
Ólafsvíkingar komust í 2-1 í leiknum en Fjölnismenn náðu að koma til baka og knýja fram sigur í hörkuleik.
Ólafsvíkingar komust í 2-1 í leiknum en Fjölnismenn náðu að koma til baka og knýja fram sigur í hörkuleik.
Fjölnir er því Íslandsmeistari í Futsal en liðið mun taka þátt í undankeppni EM á næsta ári.
Fjölnir sigraði Grundarfjörð í 8-liða úrslitunum á föstudag og í gær sigraði liðið ÍBV í undanúrslitum.