Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 06. janúar 2011 18:26
Magnús Már Einarsson
Heimild: Soccerway 
Klose líklega á förum frá Bayern
Mynd: Getty Images
Miroslav Klose, framherji FC Bayern, gæti verið á förum frá félaginu í þessum mánuði.

Klose hefur einungis verið sex sinnum í byrjunarliði á þessu tímabili en hann hefur ekki ennþá náð að skora.

Þessi þýski landsliðsmaður verður samningslaus í lok tímabilsins og því gæti Bayern reynt að Selja hann núna.

,,Þeir fyrstu sem ég hef samband við er Bayern,” sagði Klose.

,,Ég er opinn fyrir öllu og gæti alvarlega íhugað að fara í annað lið í Bundesligunni eða erlendis."
banner