Heimild: Sky
Damien Comolli, yfirmaður knattspyrnumála hjá Liverpool, hefur staðfest að félagið hafi áhuga á Luis Suarez og Ashley Young en hann segir félagið þó ekki vera nálægt því að ganga frá samningum.
Talið er að Liverpool hafi rætt við Ajax um kaup á Suarez en það ber ennþá þónokkuð á milli í samningaviðræðum.
,,Við erum fyrst og fremst að leita að sóknarmanni með hraða því að liðið vantar hraða," sagði Comolli.
,,Hvað varðar Suarez þá er ekkert í gangi með Ajax. Hann er einn af þeim leikmönnum sem við höfum áhuga á. Verður hann falur í janúar? Það er önnur saga."
Liverpool hefur líka áhuga á Young sem hefur einnig verið orðaður við Manchester United og Tottenham.
,,Varðandi Young, ef hann er á markaðinum þá höfum við áhuga en ég tel að það sé ekki tilfellið," sagði Comolli.