Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 28. janúar 2011 13:02
Magnús Már Einarsson
Heimild: Sky 
Liverpool ennþá í viðræðum við Ajax um kaup á Suarez
Mynd: Getty Images
Liverpool er ennþá að ræða við Ajax um hugsanleg kaup á framherjanum Luis Suarez.

Ekkert samkomulag er þó í augsýn ennþá en þónokkuð ber á milli í viðræðunum.

Talið er að Ajax hafi lækkað verðmiða sinn í 25 milljónir evra en Liverpool bauð aftur á móti síðast 20 milljónir evra í Úrúgvæann.

Fyrr í vikunni sagði Frank de Boer þjálfari Ajax að Liverpool verði að koma með almennilegt tilboð fyrir laugardag ef kaupin eiga að ganga í gegn.

Suarez var að klára langt leikbann eftir að hann beit mótherja undir lok síðasta árs en hann getur leikið með Ajax að nýju þegar liðið mætir NAC á sunnudag.
banner