Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 03. febrúar 2011 19:00
Hafliði Breiðfjörð
Heimild: Goal.com 
Carragher líklegastur til að vera fyrstur til að tækla Torres
Mun Carragher verða fyrstur til að tækla Torres?
Mun Carragher verða fyrstur til að tækla Torres?
Mynd: Getty Images
Veðbankar telja líklegast að Jamie Carragher muni verða fyrstur til að brjóta á Fernando Torres þegar Liverpool og Chelsea mætast í ensku úrvalsdeildinni á sunnudaginn.

Spænski framherjinn gekk til liðs við Chelsea frá Liverpool 31. janúar síðastliðinn og mætir sínum gömlu félögum í stórleik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni á sunnudaginn. Þar snýr Carragher hinsvegar aftur í lið Liverpool eftir langa fjarveru vegna meiðsla á öxl.

William Hill veðbankinn setur líkurnar 6/1 á að Carragher verði fystur til að tækla Torres í leiknum.

,,Auðvitað myndi enginn leikmaður Liverpool óska Torres neins nema farsæls ferils hjá Chelsea, né mun neinn af þeim óska sér þess að vera fundnir sekir um að vera grófir gegn honum," sagði Graham Sharpe talsmaður William Hill.

,,En það er ekki hægt að komast hjá því að einn eða fleiri muni brjóa á honum, og við munum telja Jamie Carragher líklegastan til að gera það."

Næstir á listanum eru Martin Skrtel með 6/1, og Steven Gerrard fyrirliði liðsins með 9/1 en svona er listinn í heild sinni:

Hver er líklegastur til að tækla Fernando Torres fyrst:
Jamie Carragher 6/1
Martin Skrtel 7/1
Sotirios Kyrgiakos 7/1
Daniel Agger 8/1
Lucas 9/1
Steven Gerrard 9/1
Martin Kelly 10/1
Fabio Aurelio 11/1
Glen Johnson 11/1
Jay Spearing 11/1
Raul Meireles 11/1
banner
banner
banner