Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 05. febrúar 2011 13:14
Hörður Snævar Jónsson
Heimild: Sky 
Reina: Það er félagið og stuðningsmenn sem eru mikilvægastir
Mynd: Getty Images
Pepe Reina markvörður Liverpool segir það eðlilegt að leikmenn komi og fari frá félögum.

Fernando Torres fór frá Liverpool til Chelsea sem hefur farið illa í stuðningsmenn félagsins.

Félagið fékk hinsvegar Andy Carroll og Luiz Suarez í staðinn.

,,Hann ákvað að fara því hann taldi þetta gott skref til að bæta sig sem leikmaður og við verðum að virða það," sagði Reina.

,,Sumir segja að hann hafi sýnt óvirðingu við Liverpool en það sem hann gaf Liverpool var mikið."

,,Hann þroskaðist sem leikmaður Liverpool og Liverpool hefur bætt sig á meðan hann var."

,,Þetta eru bara viðskipti, leikmenn koma og fara. Það er félagið og stuðningsmenn sem eru mikilvægastir."

banner
banner
banner