Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 06. febrúar 2011 15:10
Magnús Már Einarsson
Byrjunarlið Chelsea: Torres byrjar gegn Liverpool
Mynd: Getty Images
Carlo Ancelotti, stjóri Chelsea, hefur tilkynnt byrjunarliðið sem mætir Liverpool klukkan 16:00.

Fernando Torres er í byrjunarliðinu í sínum fyrsta leik með Chelsea og ljóst er að allra augu munu beinast að honum í leiknum.

Torres kom til Chelsea frá Liverpool á 50 milljónir punda síðastliðinn mánudag en hann kemur inn í byrjunarliðið á kostnað Salomon Kalou.

David Luiz kom einnig til Chelsea frá Benfica á sama tíma en hann byrjar á bekknum í dag.

Chelsea: Cech; Bosingwa, Ivanovic, Terry, Ashley Cole; Essien Mikel, Lampard; Anelka; Torres, Drogba.
Varamenn: Turnbull, David Luiz, Malouda, Ferreira, Kalou, McEachran, Sala.
banner
banner