Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 11. febrúar 2011 10:35
Hörður Snævar Jónsson
Heimild: Heimasíða WBA 
Roy Hodgson tekinn við WBA (Staðfest)
Mynd: Getty Images
West Bromwich Albion hefur staðfest ráðningu sína á Roy Hodgson og mun hann taka við liðinu eftir helgi.

Roberto Di Matteo var látinn taka pokann sinn eftir tap um síðustu helgi en WBA eru nýliðar í deildinni og eru sem stendur í sautjánda sæti.

Roy Hodgson var ekki lengi án starfs en hann var rekinn frá Liverpool í byrjun janúar eftir að hafa tekið við liðinu síðasta sumar.

Hann var valinn þjálfari ársins á síðustu leiktíð þegar hann gerði frábæra hluti með Fulham.

Michael Appleton mun stýra liðinu á morgun er liðið mætir West Ham í mikilvægum leik.
banner
banner