Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 23. febrúar 2011 17:39
Magnús Már Einarsson
Myndband: Sló sjálfan sig og fékk aukaspyrnu
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Bryan Carrasco, leikmaður U20 ára landsliðs Chile, beitti nýstárlegu bragði til að fá aukaspyrnu í leik gegn Ekvador á dögunum.

Ekvadorar áttu innkast og Carrasco var að dekka einn leikmann þeirra.

Þegar hann sá boltann koma ákvað Carrasco að grípa í höndina á leikmanni Ekvador og slá sjálfan sig.

Carrasco henti sér síðan í jörðina og fékk aukaspyrnuna á meðan að leikmaður Ekvadora reyndi að átta sig á atburðarásinni.

Hér að neðan má sjá myndband af atvikinu.


banner
banner