Heimild: Sporting Life
Jack Wilshere, miðjumaður Arsenal, er ósáttur við hegðun Barry Ferguson miðjumanns Birmingham í úrslitaleik enska deildabikarsins í gær.
Þegar Ferguson fagnaði sigurmarki Obafemi Martins sló hann Laurent Koscielny varnarmann Arsenal í höfuðið.
Koscielny og Wojciech Szczesny gerðu mistök í sigurmarkinu og franski varnarmaðurinn lá eftir þegar Ferguson sló hann.
,,Vel gert hjá þeim leikmanni Birmingham City sem sló Koscielny í höfuðið þegar þeir skoruðu, mjög flott hjá þér!" skrifaði Wilshere kaldhæðnislega á Twitter síðu sína í dag.
Smelltu hér til að sjá myndband af atvikinu