Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   lau 05. mars 2011 09:19
Magnús Már Einarsson
Heimild: Sky 
Robbie Fowler gæti gengið til liðs við Preston
Mynd: Getty Images
Gamla kempan Robbie Fowler hefur lýst yfir áhuga á að ganga til liðs við Preston sem er á botni ensku Championship deildarinnar.

Fowler hefur leikið í Ástralíu undanfarin tvö ár en þessi 35 ára gamli leikmaður hefur áhuga á að snúa aftur til Englands.

,,Þetta er möguleiki, við þurfum að hitta strákinn og sjá hver fjárhagslega hliðin er," sagði Phil Brown stjóri Preston.

,,Ég vil alltaf setjast niður með einhverjum horfa í augun á honum og sjá hversu hungraður hann er."

Fowler sló í gegn hjá Liverpool á sínum tíma en hann lék einnig með Leeds og Manchester City svo eitthvað sé nefnt.
banner
banner
banner