Al-Nassr vill fá Luis Díaz - Bayern ekki búið að gefast upp á Wirtz - Chelsea gæti keypt Sancho
   mið 09. mars 2011 20:04
Hörður Snævar Jónsson
Heimild: Sporting Life 
Lucas hefur ekki neinn áhuga á að yfirgefa Liverpool
Lucas Leiva miðjumaður Liverpool vill skrifa undir nýjan samning hjá félaginu.

Þessi leikmaður frá Brasilíu verður samningslaus eftir næsta tímabil en vill ekkert fara.

,,Á sumrin fara nokkrir leikmenn og aðrir koma inn. Við bíðum og sjáum, við viljum enda tímabilið vel," sagði Lucas.

,,Ég vill vera einn af þeim sem verða áfram eftir sumarið. Ég á eitt ár eftir þegar þessu tímabili lýkur svo ég þarf að vera trúr félaginu. Ég er að reyna að sanna að ég hafi allt sem þarf til að vera hérna."
banner