Heimild: Sporting Life
Portúgalski kantmaðurinn Nani mætti á æfingu með Manchester United í morgun.
Nani meiddist á fæti eftir tæklingu frá Jamie Carragher varnarmanni Liverpool í leik liðanna fyrir rúmri viku.
Búist var við að Nani yrði frá keppni fram í næsta mánuð en nú er möguleiki á að hann spili gegn Marseille annað kvöld.
Michael Carrick og Michael Owen mættu einnig á æfingu í morgun eftir meiðsli og þeir gætu náð leiknum á morgun.
Owen Hargreaves æfði líka í morgun en hann og Ji-Sung Park voru saman í sérstökum æfingum þar sem þeir eru að jafna sig af meiðslum.