Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
HM Álitið: Hver verður efnilegastur?
Þekkir að spila yfir sumarið í Bandaríkjunum - „Held það sé enginn líkami sem geti vanist því"
„Ekki jafn frjálst og á Íslandi, sérstaklega ef maður var í KR“
HM Álitið: Hver verður bestur?
Kennie bestur í maí - „Lengsta frí sem Rúnar hefur gefið mér“
Hákon Arnar: Vona að Messi spili
Gylfi um skilaréttsmálið: Meira en ánægður að hafa skipt
Aron Einar: Get staðfest að ég verð ekki áfram í Al-Gharafa
Sædís Rún: Á okkar degi getum við náð stigum af öllum liðum
Gagnrýnir nýju reglurnar harðlega - „Alveg skelfilegt ef ég á að vera hreinskilin“
Katla Tryggva fyrir Spánarleikinn: Það er alveg hægt að stríða þeim
Hödda langaði að fagna eins og Auðun gegn Haukum - „Allir á bekknum brjálaðir að hann hefði skotið"
Breki Þór: Gott í bankann
Elfar Árni: Það þýðir ekkert að fara að vorkenna sér
Badu: Við sýndum í dag að við erum með góðan hóp
Gunnar Már: Við munum ekki geta hvílt leikmenn
Viðar Örn: Ég hlakka mikið til að spila með honum í næstu leikjum
Óli Flóvents: Þetta mál er að baki
Venni: Þurfum að höndla það betur en síðast
Heimir Guðjóns: Þurfum að finna lausnir
   sun 27. mars 2011 15:48
Hafliði Breiðfjörð
Sara Björk: Búnir að fylgjast með mér síðan ég var 17 ára
Kvenaboltinn
,,Ég er búin að vera að stefna að þessu lengi og var eiginlega búin að ákveða að taka eitt tímabil með Breiðablik í sumar. En það kom upp að ég fór á trial hjá Malmö og það gekk rosalega vel þar og þeir voru ánægðir með mig og vildu fá mig. Mér fannst það tækifæri sem ég gæti ekki sleppt og ákvað að taka því og er að fara út í næstu viku," sagði Sara Björk Gunnarsdóttir við Fótbolta.net í dag en hún hefur ákveðið að ganga til liðs við LdB Malmö í Svíþjóð.

,,Þeir voru búnir að vera að fylgjast með mér og ég hef verið í sambandi við þá síðan ég var 17 ára. En þeir hafa aldrei séð mig spila að mínu mati vel, en ég stóð mig vel úti og sýndi hvað ég get. Þeir voru ánægðir með mig."

,,Stelpurnar úti sem spila þarna eru mjög ánægðar með deildina og þetta er mjög gott lið og gaman að fá samkeppni. Mér finnst skemmtilegast að vera í keppni og ætla mér að komast í liðið, það er markmiðið. Það er gott að fá samkeppni því þá leggur maður ennþá harðar að sér."

Sara hefur leikið með Breiðablik síðan á miðju tímabili 2008 en yfirgefur nú félagið. En er erfitt að kveðja þær?

,,Já, mjög erfitt, sérstaklega á þessum tímapunkti því ég var búin að setja mér markmið með liðinu og ætlaði að vera eitt tímabil í viðbót. Svo kemur þetta svona fljótt inn og ég er að fara frá liðinu svona snemma, það er erfitt."
Slapp
banner
banner
banner