banner
   þri 12. apríl 2011 17:00
Elvar Geir Magnússon
Florentino Perez ætlar að selja Kaka í sumar
Mynd: Getty Images
Florentino Perez, forseti Real Madrid, hefur ákveðið að selja miðjumanninn Kaka í sumar samkvæmt fréttum frá Spáni.

Perez hefur náð samkomulagi við Jose Mourinho, þjálfara liðsins, um að miðjumaðurinn brasilíski verður látinn fara í sumar.

Kaka hefur verið að glíma við meiðsli en er kominn aftur og getur því farið að sýna sig og sanna fyrir áhugasömum kaupendum.

Chelsea, Manchester City, AC Milan og Inter eru öll mjög áhugasöm að landa leikmanninum.

Perez mun víst ekki ætla að flækja hlutina neitt heldur selja leikmanninn til þess félags sem býður best.
banner
banner
banner