,,Þetta datt þeirra megin. Mér fannst við vera töluvert betri framan af og í lokin líka en þeir settu tvö mörk á okkur og það er það sem gildir," sagði Ray Anthony Jónsson varnarmaður Grindvíkinga eftir 2-0 tap gegn Keflavík í kvöld.
,,Við höfum verið að fá á okkur tvö mörk í hverjum einasta leik og við verðum að laga varnarleikinn."
Grindvíkingar unnu Fylki í fyrstu umferðinni en síðan hefur liðinu ekki gengið jafn vel.
,,Við verðum að vinna. Við erum búnir að tapa þremur leikjum í röð og við vinnum bara næsta leik," sagði Ray.
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.