Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 13. júní 2011 14:56
Hörður Snævar Jónsson
Phil Jones til Manchester United (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Manchester United hefur gengið frá kapunum á miðverðinum Phil Jones frá Blackburn.

Jones skrifaði undir fimm ára samning við United en Liverpool og Arsenal höfðu einnig áhuga á honum.

Jones fór í læknisskoðun hjá United fyrir síðustu helgi áður en hann mætti til Danmerkur þar sem hann spilar með U21 árs liði Englands.

Hann var í byrjunarliði liðsins í gær gegn Spánverjum þar sem hann spilaði sem miðvörður með Chris Smalling sem spilar hjá United.

Jones á að baki 40 leiki í ensku úrvalsdeildinni með Blackburn en hann getur einnig leikið á miðjunni.
banner
banner
banner
banner