Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   fim 16. júní 2011 15:01
Magnús Már Einarsson
Heimild: Sky 
Samuel Eto'o vill spila í ensku úrvalsdeildinni
Mynd: Getty Images
Samuel Eto'o framherji Inter segist hafa áhuga á að ganga til liðs við félag í ensku úrvalsdeildinni í sumar.

Eto'o kom til Inter frá Barcelona fyrir tveimur árum en hann hefur áhuga á að fara til Englands núna.

,,Ég er að skoða möguleika mína í augnablikinu. Ég hef einn mánuð til að ákveða hvort ég verð áfram eða fer í ensku úrvalsdeildina," sagði Eto'o.

,,Ég er 30 ára gamall og það er mjög mikilvægt fyrir mig að hugsa um framtíð mína áður en ég skrifa undir eitthvað sem gæti verið síðasti samningur minn á ferlinum."

,,Ég hef þegar sýnt að ég hef það sem til þarf til að spila á Ítalíu og núna hef ég áhuga á að sanna mig á Englandi."

banner
banner
banner
banner
banner