,,Þetta var fyrst og fremst skemmtun fyrir fólkið og ég held að þetta hafi heppnast mjög vel," sagði Heimir Guðjónsson sem sýndi frábæra takta í búningi KR í 2-2 jafntefli gegn ÍA í meistaraleik Steina Gísla í gær.
,,Frábært hvað margir komu til að styrkja og hjálpa Steina Gísla og fjölskyldu hans í þessum efnum, þetta er bara frábært."
,,Það eru margir sem eru með netta kúta framan á sér en gæðin eru ennþá til staðar svo ég held að fólk hafi skemmt sér vel yfir þessu."
Viðtalið við Heimi má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.