,,Þetta var hrikalega gaman," sagði Gunnlaugur Jónsson sem lék í búningi ÍA að nýju í gær er liðið gerði 2-2 jafntefli við KR í meistaraleik Steina Gísla.
,,Það var frábær mæting, gott veður, frábær völlur og tvö frábær lið og frábær málstaður, þetta var allt eins og best var á kosið," hélt hann áfram en leiknum lauk með 2-2 jafntefli.
,,Þetta endaði þannig en við fengum reyndar færi, ég var farinn að halda að Bjarni Guðjónsson vildi ekki skora í KR markið, hann fékk ótrúlega mörg færi en sem betur fer náðum við að jafna í lokin og þetta endaði eins og þetta átti að enda 2-2."
Nánar er rætt við Gunnlaug í sjónvarpinu að ofan.