,,Það er alltaf gott að setja á sig KR-búninginn þó það sé orðið langt síðan," sagði Brynjar Björn Gunnarsson sem lék með KR í meistaraleik Steina Gísla í gær.
,,Þetta er frábær málstaður til stuðnings Steina. Það var ekkert nema sjálfsagt að koma hingað upp á skaga og spila leikinn fyrir hann."
,,Ég veit ekki með leikinn, hann var örugglega skemmtilegur en ekki það sama og menn eru vanir að sjá."
Nánar er rætt við Brynjar Björn í sjónvarpinu að ofan.