,,Gæðin eru ekki alveg þau sömu en ég man hvernig á að gera þetta," sagði Ólafur Þórðarson sem jafnaði metin í lokin fyrir ÍA gegn KR í meistaraleik Steina Gísla í gær.
,,Ég vissi að Doddi myndi aldrei skora þarna svo ég ákvað að fylgja þessu eftir og kláraði þetta bara vel."
,,Þetta er eins og þetta var í gamla daga, ég hef meiri vilja heldur en þeir."
,,Þetta er búinn að vera frábær dagur og við þökkum þessu fólki fyrir frábæran stuðning við frábæran dreng sem á það svo sannarlega skilið."