Hall vill fara til Man Utd - Líka áhugi Man Utd á Robinson - Mourinho vill fá Gvardiol frá City
Besta Álitið: Hvaða lið á eftir að snúa genginu við?
Besta Álitið: Hvaða lið getur veitt Víkingum keppni?
Besta Álitið: Hvaða leikmaður fer út í glugganum?
Rokkar um stöður í Noregi - „Alltaf stemning frammi“
HM Álitið: Hvaða lið dettur óvænt út í riðlinum?
Gummi Kri: Skil að þeir séu svekktir
Gaui Lýðs: Einn leikur á þeirri vegferð sem við erum á
Maggi: Geggjað að það sé Megavika núna
Gabríel Aron: Smá skref niður til þess að taka tvö upp
Megaviku Birkir þakklátur: Örugglega svona tuttugu ár síðan
Jökull: Algjörlega galið að eiga þá umræðu hér
HM Álitið: Hvað kemur mest á óvart?
HM Álitið: Hvaða frægi verður mest áberandi í stúkunni?
Albert: Þetta er auðvitað geitin í leiknum
Jón Dagur: Hann braut okkur alveg með fyrstu sendingunni
Orri: Hann byrjaði að skapa mikinn usla á milli línanna
Fyrsta landsliðsmarkið komið: „Það var bara ekkert annað hægt en að slútta þessu“
Glódís hreinskilin: Veit ekki hvernig þetta umspil virkar
Diljá Ýr: Ennþá með sama markmið
HM Álitið: Hvaða leikmaður springur út?
   þri 12. júlí 2011 22:33
Alexander Freyr Tamimi
Ashley Bares: Vissi ekki í hálfleik að Valur hefði tapað
Kvenaboltinn
Ashley Bares í leiknum í kvöld, en hún skoraði þrennu.
Ashley Bares í leiknum í kvöld, en hún skoraði þrennu.
Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson
Ashley Bares átti frábæran leik líkt og liðsfélagar sínir þegar Stjarnan bar 4-0 sigur úr bítum gegn Breiðablik í Pepsi deild kvenna í Kópavoginum í kvöld. Með sigrinum er lið Stjörnunnar komið á topp deildarinnar og var Ashley ánægð með frammistöðuna.

„Þetta var góður sigur. Ég held að við höfum verið pínu stressaðar í byrjun og það tók okkur örlítið lengur að komast inn í leikinn en við höfðum hugsað okkur. En í hálfleik ræddum við málið, breyttum aðeins til og spiluðum betur í seinni hálfleik,“ sagði Ashley við Fótbolta.net.

Aðspurð hvort að það hafi gefið liðinu aukinn kraft að vita í hálfleik að Valur hafi tapað gegn ÍBV í Vestmannaeyjum segist Ashley ekki hafa vitað af því, enda tali hún ekki íslensku og gleymdist að þýða fregnirnar fyrir hana.

„Ég vissi reyndar ekki af því fyrr en eftir leikinn vegna þess að ég skil ekki það sem hinir segja, en það er alltaf hvatning að fara bara út og leggja sig fram og vinna leikinn, en það var gott að fá þessar fréttir eftir leikinn.“

Ashley skoraði þrjú fyrstu mörk Stjörnunnar í leiknum og var hún að sjálfsögðu ánægð með það.

„Það er alltaf gaman fyrir framherja að skora þrennu og það var gott að geta hjálpað liðinu,“ sagði hún við Fótbolta.net.

Viðtalið í heild sinni má sjá hér að ofan.
Slapp
banner