Stjarnan 2 - 3 Keflavík
1-0 Baldvin Sturluson (19')
1-1 Einar Orri Einarsson (20')
1-2 Magnús Þórir Matthíasson (51')
2-2 Halldór Orri Björnsson (57' víti)
2-3 Hilmar Geir Eiðsson (82')
1-0 Baldvin Sturluson (19')
1-1 Einar Orri Einarsson (20')
1-2 Magnús Þórir Matthíasson (51')
2-2 Halldór Orri Björnsson (57' víti)
2-3 Hilmar Geir Eiðsson (82')
Keflavík varð í kvöld fyrsta liðið til að vinna Stjörnuna í Garðabænum í deildinni á þessu tímabili, en þeir lönduðu sterkum 3-2 sigri og fóru upp fyrir Breiðablik og FH í 6. sæti deildarinnar.
Leikurinn byrjaði fjöruglega eins og við má búast í Garðabænum, en strax á 4. mínútu komst Ellert Hreinsson í ákjósanlegt færi en skot hans var slakt og fór beint á Ómar Jóhannsson í marki Keflvíkinga.
Garðbæingarnir voru sterkari aðilinn til að byrja með og uppskáru eftir því á 19. mínútu, en þá kom Baldvin Sturluson heimamönnum yfir eftir klafs í teignum.
Keflvíkingar voru þó ansi fljótir að jafna metin en strax á næstu mínútu skoraði Einar Orri Einarsson og staðan orðin 1-1. Þá fengu þeir aukaspyrnu á hættulegum stað, Guðmundur Steinarsson skrúfaði knöttinn á höfuð Einars Orra sem hamraði knöttinn í netið.
Hálfleikurinn datt aðeins niður eftir þetta og var fátt markvert sem gerðist þar til flautað var til leikhlés, staðan ennþá 1-1 og allt gat gerst.
Síðari hálfleikurinn byrjaði af krafti sem og sá fyrri og snemma fékk Halldór Orri fínt skotfæri en náði ekki að nýta sér það, skot hans fór hátt yfir.
Þeim var svo refsað fyrir það skömmu síðar þegar Magnús Þórir Matthíasson kom Keflvíkingum yfir. Ingvar Jónsson varði boltann þá út í teiginn og hann fór í Magnús Þóri og í netið. Gestirnir komnir yfir, en sú gleði var skammvinn.
Því að sex mínútum síðar fékk Stjarnan vítaspyrnu, þeir voru reyndar ósáttir vegna þess að Garðar Jóhannsson náði að skora en Þóroddur Hjaltalín Jr var ákveðinn og benti á punktinn. Þangað steig Halldór Orri Björnsson, sem var alveg svellkaldur og skoraði í mitt markið. Leikurinn var því aftur orðinn jafn og engin leið að segja til um hverjar lokatölur yrðu.
Líkt og eftir mörkin tvö í fyrri hálfleik datt leikurinn þó aðeins niður eftir jöfnunarmark Stjörnunnar. Boltanum var bara dælt fram hjá báðum liðum og lítið miðjuspil í gangi.
Þegar lítið var eftir tókst Keflvíkingum þó að skora mark sem reyndist sigurmark leiksins. Þá átti Guðmundur Steinarsson frábæra fyrirgjöf inn í teiginn og þar var Hilmar Geir Eiðsson mættur í flugskallann og boltinn steinlá í netinu.
Mörkin urðu ekki fleiri, með smá heppni hefðu heimamenn getað jafnað en 3-2 sigur Keflvíkinga staðreynd og eru þeir komnir í 6. sæti deildarinnar líkt og áður kom fram. Stjarnan er enn í 4. sæti en gætu dottið niður ef FH-ingar vinna sinn leik gegn Val á morgun.
Byrjunarlið Stjörnunnar: Ingvar Jónsson (M), Tryggvi Sveinn Bjarnason, Jóhann Laxdal, Daníel Laxdal (F) (85. Bjarki Pál Eysteinsson), Halldór Orri Björnsson, Nikolaj Pedersen, Hörður Árnason (71. Hafsteinn Rúnar Helgason), Jesper Holdt Jensen, Baldvin Sturluson, Ellert Hreinsson (85. Atli Jóhannsson), Garðar Jóhannsson.
Byrjunarlið Keflavíkur: Ómar Jóhannsson (M), Adam Larsson, Guðjón Árni Antoníusson, Haraldur Freyr Guðmundsson (F), Einar Orri Einarsson, Andri Steinn Birgisson (78. Magnús Þór Magnússon), Guðmundur Steinarsson (85. Bojan Stefán Ljubicic), Hilmar Geir Eiðsson, Arnór Ingvi Traustason, Magnús Þórir Matthíasson (70. Magnús Sverrir Þorsteinsson), Viktor Smári Hafsteinsson.
Gul spjöld: Magnús Þórir Matthíasson (Keflavík), Daníel Laxdal (Stjörnunni), Andri Steinn Birgisson (Keflavík)
Maður leiksins: Guðmundur Steinarsson (Keflavík)
Áhorfendur og aðstæður: 832 í sæmilegu veðri.
Dómari: Þóroddur Hjaltalín Jr, góður.
Leik lokið Þrátt fyrir þunga pressu í lokin unnu Keflvíkingar sigur í hörku skemmtilegum fótboltaleik.
89 mín Áhorfendur voru 832 í kvöld.
86 mín Bjarki Páll Eysteinsson og Atli Jóhannsson eru ða koma inná hjá Stjörnunni í stað Ellert Hreinsson og Daníel Laxdal. Guðmundur Steinarsson og Bojan Ljubicic kemur inná í hans stað.
82 mín MAAARRKK!!! Hilmar Geir Eiðsson var að koma Kefvlíkingum yfir með skutluskalla eftir frábæra fyrirgjöf frá Guðmundi Steinarssyni.
79 mín Arnór Traustason fer af velli og Magnús Þór Magnússon.
78 mín Andri Steinn og Daníel Laxdal lenntu smá saman og fengu báðir að líta gula spjaldið. Hárrétt hjá dómara leiksins.
76 mín Við óskum eftir marki hér í Garðabænum.
71 mín Magnús Sverrir Þorsteinsson kemur inná í stað markaskoraran nafna hans Magnús Þóri Matthíasson. Þá gera Stjörnumenn einnig breytingu. Hörður Árnason fer af veli og Hafsteinn Rúnar Helgason kemur inná.
57 mín Halldór Orri svellkaldur á punktinum vippaði boltanum upp við slánna og skoraði.
55 mín Það er vítaspyrna á Stjörnuvelinum. Klárlega víti en hann hefði getað látið leikinn halda áfram því Stjörnumenn skoruðu. Ellert liggur eftir.
52 mín Stjörnumenn hársbreidd frá því að jafna metin en Garðar náði ekki til boltans eftir fyrirgjöf frá bakverðinum Herði Árnasyni.
51 mínMAAAARRKK! Magnús Þórir Matthíasson fékk boltann í sig og yfir marklínuna eftir að Ingvar Jónsson hafi slegið boltann beint í Magnús eftir skot Hilmars Geirs Eiðssonar.
48 mín Halldór Orri var í úrvalsfæri en skaut boltanum hátt yfir. . Suttu seinna átti Daníel Laxdal gott skot en Ómar varði í horn. Úr hornspyrnunni fór boltinn greinilega í höndina á leikmanni Keflvíkinga. Þarna voru Stjörnumenn rændir vítaspyrnu.
46 mínSeinni hálfleikurinn er hafinn hér í Garðabænum. Grasið er alltaf jafn grænt á vellinum.
Hálfleikur Þá hefur Þóroddur flautað til hálfleiks það róaðist örlítið yfir leiknum eftir mörkin tvö, stjörnumenn þó aðeins líklegri en staðan í hálfleik því 1-1
37 mín Baldvin Sturluson átti hér lúmskan skalla sem Ómar Jóhannsson náði að verja naumlega í horn.
33 mín Ellert Hreinsson með fast skot úr vítateig Keflvíkinga sem Ómar varði vel.
23 mín Magnús Þórir Matthíasson fékk að líta gula spjaldið fyrir gróft brot.
20 mín MAAARRRKK!! Keflvíkingar voru ekki lengi að svara fyrir sig. Guðmundur Steinarsson tók aukaspyrnu frá vinstri og skrúfaði boltann beint á kollinn á Einari Orra Einarssyni sem skallaði boltann í netið. Fjörið er hafið. Ekki einu mörk þessa leiks það er pottþétt.
19 mín MAAAARKKK!!!! Baldvin Sturluson var að skora eftir mikinn darraðardans í teignum. Stjörnumenn tóku hornspyrnu sem Tryggvi skallaði, boltinn datt fyrir Baldvin sem náði að koma boltanum yfir marklínuna.
17 mínNikolaj Pedersen átti gott skot rétt framhjá Keflavíkur markinu. Það skall hurð nærri hælum hjá Keflvíkingum. Stjörnumenn mikið mun ákveðnari hérna í byrjun.
12 mínHörður Árnason með skot úr vítateignum en boltinn fór yfir markið. Það var Tryggvi Bjarnason sem lagði upp þetta færi eftir að hafa sólað þrjá Keflvíkinga uppúr skónum.
4 mín Stjörnumenn strax í góðu færi. Ellert Hreinsson skaut beint á Ómar úr góðu færi eftir að Stjörnumenn geystust upp í skyndisókn. illa farið með gott tækifæri þarna.
1.mínEftir einnar mínútu þögn þar sem fórnarlamba hryðjuverkaárasarinnar í Noregi var minnst hefur Þóroddur Hjaltalín jr. flautað til leiks. Stjörnumenn hefja leikinn og sækja í átt að Hafnarfirðinum á meðan Keflvíkingar sækja í átt að Garðabænum og Kópavogi.
19:05Nú fer að styttast í að leikar hefjist hér á Stjörnuvellinum. Menn eru farnir að flykkjast á völlinn. Það er mikið áfall að vallarþulur Stjörnumanna er ekki til staðar í þessum leik og mun starfsmaður fótbolta.net leysa það verkefni. Spurning hvaða áhrif það hefur á liðin.
18.55: Dómari í kvöld er Þóroddur Hjaltalín Jr. og honum til aðstoðar eru þeir Oddbergur Eiríksson og Óli Njáll Ingólfsson.
18.45: Þá er ekki nema hálftími í að leikar hefjist hérna í Garðabænum. Mikilvægur leikur fyrir bæði lið, Keflvíkingar geta blandað sér í baráttuna um Evrópusæti og Stjarnan getur stimplað sig vel inn í sömu baráttu.
18.33: Síðasti leikur þessara liða var heldur betur ekki án umdeilanlegra atvika. Hann var í fyrstu umferðinni og lauk með 4-2 sigri Keflvíkinga sem komust meðal annars upp með það að verja með hendi á marklínu.
18.30: Góða kvöldið kæru lesendur og verið hjartanlega velkomin í beina textalýsingu frá leik Stjörnunnar og Keflavíkur í Pepsi deild karla. Leikurinn fer fram á gervigrasinu í Garðabæ þar sem Stjarnan hefur ekki enn tapað leik í deildinni. Þeir eru í 4. sæti deildarinnar með 18 stig en Keflvíkingar eru 8. sætinu með 14 stig.
Byrjunarliðin eru hér fyrir neðan.
Byrjunarlið Stjörnunnar: Ingvar Jónsson (M), Tryggvi Sveinn Bjarnason, Jóhann Laxdal, Daníel Laxdal (F) (85. Bjarki Pál Eysteinsson), Halldór Orri Björnsson, Nikolaj Pedersen, Hörður Árnason (71. Hafsteinn Rúnar Helgason), Jesper Holdt Jensen, Baldvin Sturluson, Ellert Hreinsson (85. Atli Jóhannsson), Garðar Jóhannsson.
Byrjunarlið Keflavíkur: Ómar Jóhannsson (M), Adam Larsson, Guðjón Árni Antoníusson, Haraldur Freyr Guðmundsson (F), Einar Orri Einarsson, Andri Steinn Birgisson (78. Magnús Þór Magnússon), Guðmundur Steinarsson (85. Bojan Stefán Ljubicic), Hilmar Geir Eiðsson, Arnór Ingvi Traustason, Magnús Þórir Matthíasson (70. Magnús Sverrir Þorsteinsson), Viktor Smári Hafsteinsson.