Heimild: BBC
Owen Coyle, stjóri Bolton, segir ekkert til í því að varnarmaðurinn Gary Cahill sé við það að ganga í raðir Liverpool.
Varnarleikur Liverpool hefur verið ósannfærandi á undirbúningstímabilinu og fyrr í vikunni var Cahill orðaður við félagið.
Varnarleikur Liverpool hefur verið ósannfærandi á undirbúningstímabilinu og fyrr í vikunni var Cahill orðaður við félagið.
Cahill hefur einnig verið orðaður við Arsenal og Manchester City í sumar en Coyle segir að hann sé ekki að fara neitt.
,,Það heur ekkert breyst, það er ekkert klárt og það eru engar fréttir," sagði Coyle.
Hinn 25 ára gamli Cahill kom til Bolton frá Aston Villa á fimm milljónir punda árið 2008 og hefur síðan þá verið einn besti leikmaður liðsins.