Heimild: Heimasíða Liverpool
Liverpool hefur gengið frá kaupum á varnarmanninum Sebastian Coates en hann kemur til félagsins frá Nacional.
Coates fékk atvinnuleyfi á Englandi í dag og Liverpool staðfesti félagaskipti hans í kvöld.
Coates fékk atvinnuleyfi á Englandi í dag og Liverpool staðfesti félagaskipti hans í kvöld.
Þessi tvítugi leikmaður er landsliðsmaður frá Úrúgvæ en hann var í sigurliðinu í Suður-Ameríkubikarnum í sumar.
Coates mun nú hitta nýju liðsfélagana sína áður en hann heldur til Kiev í Úkraínu þar sem Úrúgvæ leikur æfingaleik á föstuadg.
Hjá Liverpool hittir hann fyrir landa sinn Luis Suarez sem kom til Liverpool í janúar síðastliðnum.