Heimild: Sky
Aston Villa ætlar að reyna að krækja í Joe Cole frá Liverpool áður en félagaskiptaglugginn lokar klukkan 22:00 í kvöld.
Cole hefur verið sterklega orðaður við frönsku meistarana í Lille en Aston Villa hefur nú blandað sér í baráttuna.
Cole hefur verið sterklega orðaður við frönsku meistarana í Lille en Aston Villa hefur nú blandað sér í baráttuna.
Talið er að Lille eigi í erfiðleikum með að standa undir launakröfum Cole og því gæti Aston Villa krækt í kappann.
Ashley Young og Stewart Downing fóru frá Villa í sumar og þrátt fyrir að Charles N'Zogbia hafi komið frá Wigan þá er Alex McLeish ennþá að leita að kantmanni.
Joe Cole, sem er 29 ára, kom til Liverpool frá Chelesa síðastliðið sumar en hann hefur ekki náð að festa sig í sessi á Anfield.