Hall vill fara til Man Utd - Líka áhugi Man Utd á Robinson - Mourinho vill fá Gvardiol frá City
   mið 21. september 2011 15:15
Magnús Már Einarsson
Gunnlaugur Jónsson: Mörg lið sem vildu Hauk fyrir tímabilið
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Haukur Heiðar Hauksson, fyrirliði KA, er á förum frá félaginu en ljóst er að hann mun leika í Pepsi-deildinni að ári.

Fyrr í vikunni bárust fréttir af því að Haukur Heiðar sé í viðræðum við KR en mörg félög hafa sýnt honum áhuga á þessu ári. Haukru hefur verið að æfa með Vesturbæjarliðinu.

,,Það er óumflýjanlegt að hann fari. Við erum búnir að berjast allt árið fyrir að halda honum,“ sagði Gunnlaugur Jónsson þjálfari KA við Fótbolta.net.

,,Það voru mörg lið sem vildu fá hann fyrir tímabilið og í glugganum þannig að við stöndum ekki í vegi fyrir honum núna. Við vorum þakklátir fyrir að hann kláraði tímabilið með okkur en hann fer í haust.“

Haukur Heiðar var í liði ársins í fyrstu deildinni í sumar en þessi tvítugi hægri bakvörður var einnig valinn bestur á lokahófi KA um síðustu helgi.

Samtals hefur Haukur skorað átta mörk í 91 deildar og bikarleik með KA síðan hann lék sinn fyrsta meistaraflokksleik árið 2008.
Slapp
banner