Hall vill fara til Man Utd - Líka áhugi Man Utd á Robinson - Mourinho vill fá Gvardiol frá City
   mið 21. september 2011 14:39
Elvar Geir Magnússon
Hafsteinn Briem stefnir á að spila í Pepsi-deildinni
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Miðjumaðurinn öflugi, Hafsteinn Briem, stefnir á að leika í Pepsi-deildinni næsta sumar.

Þessi tvítugi leikmaður hefur allan sinn feril leikið með HK en hann lék sinn fyrsta leik fyrir meistaraflokk félagsins sextán ára gamall.

Hann hefur síðustu þrjú ár leikið stórt hlutverk með liðinu í 1. deild en hann kom við sögu í einum leik í efstu deild 2008.

Eins og kunnugt er féll HK úr 1. deildinni í sumar og ætlar Hafsteinn ekki að leika í 2. deildinni.

„Ég ætla að reyna að fara í efstu deild næsta sumar. Það var alveg planið áður en HK féll. Ég hef heyrt útundan mér að það sé einhver áhugi en annars eru mörg lið að berjast fyrir lífi sínu í Pepsi-deildinni svo þeirra mál eru enn í óvissu," segir Hafsteinn.
Slapp
banner
banner