Hall vill fara til Man Utd - Líka áhugi Man Utd á Robinson - Mourinho vill fá Gvardiol frá City
   fim 22. september 2011 07:30
Magnús Már Einarsson
Eyþór Helgi ætlar í Pepsi-deildina - ÍBV ofarlega á blaði
Eyþór gæti verið á leið til ÍBV á nýjan leik.
Eyþór gæti verið á leið til ÍBV á nýjan leik.
Mynd: Fótbolti.net - Vilhjálmur Siggeirsson
Eyþór Helgi Birgisson, framherji HK, er líklega á förum frá félaginu en hann stefnir á að spila í Pepsi-deildinni næsta sumar.

,,Ég fer að öllum líkindum í Pepsi-deildina," sagði Eyþór Helgi við Fótbolta.net í gær.

Eyþór Helgi lék með ÍBV síðari hluta sumars árið 2009 sem og í fyrra þegar hann skoraði tvö mörk í átján leikjum í Pepsi-deildinni.

Eyþór Helgi segist vera spenntur fyrir því að ganga aftur til liðs við Eyjamenn.

,,Ég er opinn fyrir öllu en ÍBV er ofarlega í huga mínum," sagði Eyþór Helgi.

Eyþór Helgi, sem er 22 ára gamall, er uppalinn hjá HK en hann skoraði tíu mörk í 18 leikjum í fyrstu deildinni í sumar.
Slapp
banner