,,Þetta er fáranlega ljúft," sagði Orri Freyr Hjaltalín leikmaður Grindavíkur í samtali við Fótbolta.net eftir að liðið tryggði sæti sitt í Pepsi deildinni.
Lestu um leikinn: ÍBV 0 - 2 Grindavík
Grindavík vann ÍBV 2-0 í dag og tryggði sætið í deildinni en liðið var í fallsæti fyrir umferðina.
,,Það voru allir búnir að afskrifa okkur fyrir þennan leik og það er virkilega sætt að klára þetta."
,,Við höfum spilað nokkra svona leiki áður og unnið þá og við vorum sigurvissir fyrir þennan leik."
Nánar er rætt við Orra í sjónvarpinu hér að ofan.